Landslag Vatnslitaverk eftir Gunnar Gränz á sýningu hans.
Landslag Vatnslitaverk eftir Gunnar Gränz á sýningu hans.
Þessa dagana, í menningarmánuðinum október, heldur Gunnar Gränz málverkasýningu í Listagjánni á Bókasafni Árborgar.

Þessa dagana, í menningarmánuðinum október, heldur Gunnar Gränz málverkasýningu í Listagjánni á Bókasafni Árborgar. Í tilkynningu segir að Gunnar hafi aldrei gengið í listaskóla en líti á sig sem alþýðulistamann sem lært hefur í skóla lífsins og sótt menntun til íslenskrar náttúru og annarra listamanna í landinu. Hann málar sér til ánægju og hefur haldið fjölda sýninga, bæði einn og með öðrum listamönnum.

Gunnar er fæddur í Vestmannaeyjum 1932 en flutti á Selfoss árið 1942 og hefur búið þar alla tíð síðan. Hann fékk Menningarviðurkenningu Sveitarfélagsins Árborgar árið 2016. Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.