Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Helsta fyrirstaða Landspítala að takast á við aukinn fjölda innlagna vegna kórónuveirusmita liggur fyrst og fremst í mönnun, að sögn Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, starfandi forstjóra Landspítala.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir

hmr@mbl.is

Helsta fyrirstaða Landspítala að takast á við aukinn fjölda innlagna vegna kórónuveirusmita liggur fyrst og fremst í mönnun, að sögn Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, starfandi forstjóra Landspítala.

„Helsti akkilesarhæll okkar er mönnun. Aukin smit kalla á fleiri innlagnir, þetta helst allt í hendur. Þegar það fjölgar á Covid-göngudeildinni þá þurfum við að færa mannskap til. Við þurfum að finna út úr því hvernig við mönnum ef það eru aukin smit í samfélaginu,“ segir Guðlaug Rakel.

Nokkuð er liðið frá því að Landspítali var tekinn af hættustigi og færður á óvissustig. Þrír lágu í gær inni á spítala vegna Covid-19, þar af einn á gjörgæslu. Þá eru 192 börn og 281 fullorðinn á Covid-göngudeildinni.

Að sögn Guðlaugar er staðan á spítalanum góð hvað varðar Covid-19. „Við getum vel sinnt stöðunni eins og hún er núna. Við erum í þokkalegu standi eins og staðan er í dag. Engu að síður er áhættan alltaf til staðar ef það eru miklar tilslakanir. Það er áhætta sem við verðum að meta.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst funda með forsvarsmönnum spítalans í dag um stöðuna, en Guðlaug Rakel vildi ekki gefa upp fyrr en eftir fundinn í dag hvort þar yrði hægt að gefa grænt ljós á frekari afléttingar.

Óljóst hver afraksturinn verði

Í minnisblaði sem forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra sendu á ríkisstjórn Íslands á þriðjudag er gefið til kynna að tilslakanir séu í kortunum. Er það meðal annars rökstutt í ljósi þess að á næstu vikum muni afrakstur þeirra aðgerða, sem gripið var til í þeim tilgangi að efla viðnámsþrótt heilbrigðiskerfisins, skila sér.

Aðgerðirnar sem m.a. er kveðið á um í minnisblaðinu eru „styrking heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu, tímabundin fjölgun legurýma á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorni landsins, undirbúningur varanlegrar fjölgunar legurýma á LSH og styrking sjúkraflutninga til að meðhöndla sjúklinga í heimahúsum þegar það á við, í stað flutnings á bráðamóttöku.

Því til viðbótar má nefna að Sjúkratryggingar eru að ganga frá samningi við hjúkrunarheimilið Eir sem mun létta undir með Landspítala með því að annast Covid-smitaða aldraða sem ekki þarfnast sjúkrahúsþjónustu.“

Aðspurð hvort hún búist við að þessar aðgerðir muni skila árangri segir Guðlaug Rakel erfitt að svara því. „Í raun og veru hefði maður verið til í að sjá þetta gerast fyrr. Það er bara verið að vinna í því alla daga að bæta stöðuna, fjölga rúmum og bæta flæði. Starfsemi spítalans er þannig að hún getur breyst á einu augabragði. Fyrirsjáanleikinn er ekkert mjög mikill.“

Ítarlegra viðtal við Guðlaugu má finna á mbl.is.