Á Ásvöllum Sandra Ygueravide og Bríet Sif Hinriksdóttir takast hér á í leiknum í gær en Bríet skoraði 5 stig og tók 4 fráköst fyrir Hauka.
Á Ásvöllum Sandra Ygueravide og Bríet Sif Hinriksdóttir takast hér á í leiknum í gær en Bríet skoraði 5 stig og tók 4 fráköst fyrir Hauka. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helena Sverrisdóttir skilaði sínu fyrir Hauka þegar liðið tók á móti Villeneuve D'Ascq í L-riðli Evrópubikars kvenna í körfuknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær.

Helena Sverrisdóttir skilaði sínu fyrir Hauka þegar liðið tók á móti Villeneuve D'Ascq í L-riðli Evrópubikars kvenna í körfuknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær.

Leiknum lauk með 84:41-stórsigri Villeneuve en Helena átti stórleik fyrir Hauka og var með tvöfalda tvennu, 13 stig og 13 fráköst.

Haukar byrjuðu leikinn illa og skoruðu einungis 9 stig gegn 26 stigum Villeneuve í fyrsta leikhluta og staðan var 38:20 Villeneuve í vil í hálfleik.

Haukar byrjuðu þriðja leikhluta líkt og þann fyrsta og skoruðu einungis 6 stig gegn 27 stigum Villeneuve og eftir það var leikurinn búinn. Eva Margrét Kristjánsdóttir var næststigahæst í liði Hauka með 8 stig og tók þrjú fráköst og Lovísa Björt Henningsdóttir skoraði 6 stig ásamt því að taka fimm fráköst. Haukar eru með 1 stig í fjórða og neðsta sæti riðilsins, líkt og Brno, en Villeneuve og Tarbes eru með 2 stig. Næsti leikur Hafnfirðinga er gegn franska liðinu Tarbes í Palais í Frakklandi hinn 20. október.