Íslendingaliðið Bayern München fer vel af stað í D-riðlinum í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu. Bayern vann í gær 4:0 stórsigur gegn sænska liðinu Häcken og er Bayern með 4 stig.
Íslendingaliðið Bayern München fer vel af stað í D-riðlinum í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu.
Bayern vann í gær 4:0 stórsigur gegn sænska liðinu Häcken og er Bayern með 4 stig. Lyon burstaði Benfica 5:0 og franska liðið er í efsta sæti með 6 stig.
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í vörn Bayern og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á sem varamaður á 82. mínútu. Diljá Ýr Zomers kom inn á sem varamaður hjá Häcken á 85. mínútu.