Flautuhópurinn viibra mun koma fram á öðrum stofutónleikum ársins á Gljúfrasteini á morgun, sunnudaginn 17. október, kl. 16.
Flautuhópurinn viibra mun koma fram á öðrum stofutónleikum ársins á Gljúfrasteini á morgun, sunnudaginn 17. október, kl. 16. Hópurinn mun flytja verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Berglindi Maríu Tómasdóttur, Hilmu Kristínu Sveinsdóttur og Pauline Oliveros. Á efnisskránni verða meðal annars tveir frumflutningar og nýjar útsetningar. Flautuhópurinn viibra hefur unnið mikið með Björk Guðmundsdóttur, m.a. að plötu hennar Útópíu, og farið með henni í ýmis tónleikaferðalög í kjölfarið.