Undarleg aukakíló laumast á líkamann. Þú færð sjokk þegar þú sérð mynd af þér því þú hélst þú værir miklu grennri.

Þar sem flestir lesendur Sunnudagsblaðsins eru komnir af léttasta skeiði, geri ég ráð fyrir, eru margir sem tengja við raunir þeirra sem miðaldra eru. Þið sem ekki gerið það þurfið ekki að lesa áfram.

Ég hef lengi barist á móti því að vera miðaldra en held ég verði að játa mig sigraða og reyna frekar að fagna þessu lífsskeiði. Við miðaldra fólkið erum kannski ekki alltaf með nýjustu tæknina á okkar valdi, vitum ekki hver er heitasti rapparinn en við vitum okkar viti. Ef þú ert í vafa um hvort þú fallir í flokkinn, lestu áfram. Ég get svo sem bara séð þetta frá sjónarhóli kvenna, en svona veistu að þú ert miðaldra (kona) samkvæmt minni reynslu:

Þú manst eftir því þegar það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum.

Þegar þú dvaldir sumarlangt í sveit var þar sveitasími, og já, það var hlerað.

Þú manst eftir Húsinu á sléttunni og Dallas.

Þú lærðir á tölvu eftir tvítugt.

Þú áttir símboða.

Þú lærðir á myndavél með filmu.

Vinnufélagar þínir margir gætu hæglega verið börnin þín.

Á föstudögum geturðu ekki beðið eftir að koma heim og horfa á sjónvarpið undir sæng.

Þú vaknar hálfsjö um helgar þótt þú vildir sofa út.

Þú sofnar yfir bíómyndum. Líka stundum í bíó.

Roger Moore er þinn Bond.

Eitt helsta tilhlökkunarefni lífsins er kaffibollinn að morgni dags.

Þú skilur ekkert hvernig Twitter virkar.

Þú ert nýlega búin að uppgötva nýjan takka á símanum. Að slökkva.

Eftir bíó eða leikhús eru allir liðir stirðir.

„Íþróttameiðsl“ gera vart við sig við minnstu áreynslu í ræktinni.

Undarleg aukakíló laumast á líkamann, þrátt fyrir puðið í ræktinni.

Þú færð sjokk þegar þú sérð mynd af þér því þú hélst þú værir miklu grennri.

Það eru hár farin að vaxa út úr hökunni, enninu og nefinu.

Þú skilur ekki alveg starfsheitið „áhrifavaldur“.

Einu mennirnir á Tinder sem læka þig eru nánast komnir á elliheimili.

Þér er alveg sama þótt öðrum finnst þú púkó.

Þú notar orð eins og púkó, hosiló, sjarmerandi og lekker.

Unglingarnir þínir rúlla reglulega augunum í návist þinni.