Bræðurnir Andri Lucas Guðjohnsen og Sveinn Aron Guðjohnsen, synir Eiðs Smára og sonarsynir Arnórs Guðjohnsen, fögnuðu sigri saman í landsleik við Liechtenstein á Laugardalsvelli í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta.
Bræðurnir Andri Lucas Guðjohnsen og Sveinn Aron Guðjohnsen, synir Eiðs Smára og sonarsynir Arnórs Guðjohnsen, fögnuðu sigri saman í landsleik við Liechtenstein á Laugardalsvelli í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Liðin helgi var mjög undirlögð af vistaskiptum þingmannsins Birgis Þórarinssonar , sem sagði skilið við Miðflokkinn og gekk í þingflokk sjálfstæðismanna. Skiptar skoðanir voru um þá breytni svo örskömmu eftir kosningar.

Liðin helgi var mjög undirlögð af vistaskiptum þingmannsins Birgis Þórarinssonar , sem sagði skilið við Miðflokkinn og gekk í þingflokk sjálfstæðismanna. Skiptar skoðanir voru um þá breytni svo örskömmu eftir kosningar.

Kvennalandsliðið í handbolta sigraði öflugt lið Serbíu nokkuð óvænt í undankeppni HM.

Undirbúningskjörbréfanefnd hélt áfram að hittast á opnum fundum, bæði til þess að fara yfir gagnaöflun og þau stjórnskipulegu álitaefni sem við blasa. Sagt er að tíminn líði hægar þar í fundarherberginu en annars staðar í sólkerfinu.

Skiptar skoðanir eru annars á endurtalningu í Norðvesturkjördæmi og þar skiptast menn ekki endilega eftir flokkslínum, enda vafinn um hvaða frambjóðendur sömu flokka sleppa inn á þing fyrir kraftaverk jöfnunarsætaútreiknings.

Neytendur víða í Evrópu hafa orðið fyrir ýmsum skakkaföllum vegna aðfangavandræða í kjölfar kórónukreppu. Á Íslandi hefur hins vegar komið upp skortur á grænmeti vegna félagsverkfræðitilrauna stjórnvalda með tollvernd.

Jarðfræðingar fylgjast grannt með Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi, en þar hafa jarðskjálftar verið mun tíðari síðustu mánuði en mörg undanfarin ár. Síðast gaus þar á landnámsöld. Ólíklegt þykir að titringurinn tengist eldvirkni á Reykjanesskaga.

Tvíburabræðurnir og frjálsíþróttakapparnir Haukur og Örn Clausen voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ um liðna helgi. Þeir fæddust 1928 en létust 2003 og 2008.

·

Aðrir bræður skrifuðu nöfn sín í íþróttasögu Íslands þegar þeir Andri Lucas og Sveinn Aron Guðjohnsen léku saman í landsleik á Laugardalsvelli í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta, þar sem Liechtenstein var sigrað 4:0. Þeir eru synir Eiðs Smára og sonarsynir Arnórs Guðjohnsen .

Minningarskjöldur um leikskáldið Guðmund Kamban við heimili hans í Kaupmannahöfn var fjarlægður af húseigandanum, en enn er deilt um hvort hann hafi átt í samstarfi við hernámsyfirvöld nasista í Danmörku á stríðsárunum, en hann var skotinn til bana af andspyrnuhreyfingunni í stríðslok.

Hafsteinn Þór Hauksson , dósent við lagadeild HÍ, kynnti undirbúningskjördæmanefnd þá skoðun sína að ágallar á framkvæmd kosninga þurfi að hafa áhrif á niðurstöðuna til þess að ógilding komi til greina. Jafnframt að leiði slíkir gallar í einu kjördæmi til uppkosningar, þá fari hún aðeins fram í því kjördæmi.

Dómsmálaráðuneytið vill vera við öllu búið og hefur því hafið undirbúning uppkosninga ef til þeirra skyldi koma. Til þeirra skal enda boðað með eins skömmum fyrirvara og unnt er, mánaðar í mesta lagi.

E kki verður þó betur séð en að Píratar séu til alls búnir, en kosningaauglýsingar þeirra prýða enn strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu, liðlega tveimur vikum eftir kosningar.

Tekjur Strætó af þeim auglýsingum komu hins vegar ekki í veg fyrir að þar er spáð 450 milljóna króna tapi á árinu. Mest munar um að Strætó gerði ráð fyrir því að fá 900 milljónir króna frá ríkinu í Covid-styrk, en hann reyndist vera 120 milljónir.

Orkukreppa í Evrópu er farin að leiða til lokunar kerskála álvera, sem styrkir stöðu íslenskra álvera , en ekki sakar að álverð hefur hækkað.

Mikil ásókn hefur reynst vera í atvinnulóðir í Hveragerði , sem m.a. er talið til marks um að framboð á hæfilegum lóðum á höfuðborgarsvæðinu sé ekki nægt.

Vandræði skólabarna í Fossvogi dragast á langinn, en verklok í hinum sundurmyglaða Fossvogsskóla hafa tafist um ár og hann verður ekki tilbúinn fyrr en árið 2023. Foreldrar barna í skólanum segja Reykjavíkurborg hafa fyrirgert öllu trausti með tómlæti og undanbrögðum við meðferð málsins.

·

Dr. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varaði við höfrungahlaupi á vinnumarkaðnum, sem engum myndi koma til góða þegar upp væri staðið. Hann telur stórfellda uppbyggingu íbúðarhúsnæðis mun vænlegri leið til þess að bæta stöðu heimilanna.

Sex landsliðsmenn hafa verið sakaðir um kynferðisbrot af einhverju tagi, en í lok liðins mánaðar sendi aðgerðahópurinn Öfgar fóboltasambandinu (KSÍ) tölvupóst með nöfnum þeirra og dagsetningum meintra brota. Landsliðsþjálfaranum Arnari Þór Viðarssyni var meinað að velja viðkomandi í landsliðið í leik gegn Liechtenstein.

Erna Bjarnadóttir , varaþingmaður Birgis Þórarinssonar, rauf fjögurra daga þögn sína og sagðist eftir allt saman ætla að vera áfram í Miðflokknum. Áður var hún þess fýsandi að fara með Birgi í Sjálfstæðisflokkinn en heyktist á því.

Friðrik krónprins Danmerkur kom á einkaþotu til landsins til að sækja ráðstefnu um loftslagsmál. Hann fór til Bessastaða beint af flugvellinum og fékk sér í svanginn.

Varðskipsmenn á Þór fengu það óvanalega verkefni að hirða upp 53 marsvínshræ úr Melavík á Ströndum, en með þau var siglt út á rúmsjó þannig að straumar beri þau frá landinu og hafið sjái um sína.

Hinir landluktu Skorrdælingar vilja selja hlut sinn í Faxaflóahöfnum , en hann nemur 0,2216%.

Settur forstjóri Landspítalans, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir , tekur undir áhyggjur starfsmanna um að óviðunandi ástand sé á bráðadeild spítalans, sem virðist í sífelldri og ávallt óvæntri lífshættu.

Giftingum fækkaði um 14% í fyrra, sem bendir til þess að viðleitni sóttvarnayfirvalda um vernd og viðgang þjóðarinnar með lokun skemmtistaða hafi heldur betur snúist í höndum þeirra.

·

Mörgum Íslendingum var brugðið við fregnir af hryðjuverki í bænum Kongsberg í Noregi þar sem múslimi drap fimm og særði þrjá með boga og örvum. Töluverður fjöldi Íslendinga er búsettur í Kongsberg.

Viðræður formanna stjórnarflokkanna um endurnýjað stjórnarsamstarf héldu áfram í vikunni og hafa víst gengið bærilega. Enn mun þó nokkuð bera á milli um orku- og náttúruverndarmál.

Halldór Benjamín Þorbergsson , hjá Samtökum atvinnulífsins (SA), og Drífa Snædal , hjá Alþýðusambandinu (ASÍ), eru sammála seðlabankastjóra um að húsnæðismál séu eitt helsta úrlausnarefni í kjaramálum. Drífa taldi samt að hann hefði ekki átt að hafa orð á því.

Lúxushótelið Reykjavík Edition, sem stendur við Hörpu og er rekið í samstarfi við hótelrisann Marriott, var opnað svo lítið bar á, en íburður þar er gríðarlegur.

·

Alls kyns stórmenni dreif að landinu á einkaþotum til þess að ræða loftslagsmál og norðurslóðir á ráðstefnunni Arctic Circle . Alls eru um 1.300 manns á ráðstefnunni, en þar verða um 100 fundir og 400 ræður með tilheyrandi hnattrænni hlýnun.

Logi Einarsson segist ætla enn um sinn að sitja um kyrrt sem formaður Samfylkingarinnar, þrátt fyrir léleg kosningaúrslit. Hann minnir í því samhengi á að landsfundur flokksins verði haldinn næsta haust.

Landnáma var notuð sem réttargagn í dómsmáli, þar sem deilt var um eignarrétt og landamerki, og réð raunar úrslitum í því.

Mannanafnanefnd leyfði mannanöfnin Skúa, Ármúla og Manley, en hafnaði hins vegar Hel . Hel mun engum hafna.

Kona fórst í eldsvoða í Hafnarfirði .

Björgvin Þorsteinsson , lögmaður og margfaldur Íslandsmeistari í golfi, lést 68 ára að aldri.

·

Á þessum stað var í liðinni viku missagt að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir væri stærsta nafnið í íslenskri pólitík. Það er rangt, stærsta nafnið í íslenskri pólitík er auðvitað Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir , nýkjörinn þingmaður Pírata. Lesendur og hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á mistökunum.