Kristianstad Elísabet Gunnarsdóttir heldur áfram sem þjálfari.
Kristianstad Elísabet Gunnarsdóttir heldur áfram sem þjálfari. — Ljósmynd/@_OBOSDamallsvenskan
Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir heldur áfram sem þjálfari sænska kvennaliðsins Kristianstad í a.m.k. eitt ár til viðbótar.
Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir heldur áfram sem þjálfari sænska kvennaliðsins Kristianstad í a.m.k. eitt ár til viðbótar. Hún er langt komin með sitt þrettánda tímabil með liðið frá 2009 og hefur framlengt samning sinn um eitt ár til viðbótar. Kristianstad hefur undir stjórn Elísabetar smám saman fest sig í sessi með betri liðum Svíþjóðar síðustu ár, lék í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu í sumar og er nú í fjórða sæti sænsku deildarinnar þegar þremur umferðum er ólokið.