Miðjumaðurinn Stefán Teitur Þórðarson skoraði í þriðja leik sínum í röð þegar hann skoraði eina mark Silkeborg í 1:1 jafntefli gegn Viborg í nýliðaslag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í gærkvöldi.

Stefán Teitur skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir Silkeborg um næstsíðustu helgi í 4:1-sigri gegn Nordsjælland og fylgdi því svo eftir með því að skora sitt fyrsta A-landsliðsmark í 4:0 sigri gegn Liechtenstein í undankeppni HM 2022 síðastliðinn mánudag.