Byggðastofnun Það var létt yfir þátttakendum þegar þeir stilltu sér upp.
Byggðastofnun Það var létt yfir þátttakendum þegar þeir stilltu sér upp. — Ljósmynd/Kristján Þ. Halldórsson
Verkefnastjórar Brothættra byggða og sambærilegra byggðaþróunarverkefna komu saman til fundar í húsakynnum Byggðastofnunar á Sauðárkróki dagana 12. og 13. okt. sl.

Verkefnastjórar Brothættra byggða og sambærilegra byggðaþróunarverkefna komu saman til fundar í húsakynnum Byggðastofnunar á Sauðárkróki dagana 12. og 13. okt. sl. „Ánægjulegt var að hópurinn gat loksins hist á staðfundi eftir langan tíma eftir takmarkanir vegna COVID-19,“ segir í frétt á heimasíðu stofnunarinnar.

Dagskráin var þéttskipuð. Farið var yfir verkefnislýsingu Brothættra byggða og ýmis praktísk málefni tengd framkvæmd og umsýslu verkefna í þátttökubyggðarlögunum. Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar kynnti hlutverk og starfsemi Byggðastofnunar. Fundargestum gafst færi á að kynnast nánar lánamöguleikum Byggðastofnunar, ýmissi þróunarvinnu á sviði byggðamála, s.s. þróun mælaborða um byggðatengd málefni og aðgerðaáætlun byggðaáætlunar stjórnvalda.

Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir hélt erindi sem hún nefndi Tækifæri byggðanna. Í erindi sínu kom Hólmfríður inn á margvísleg málefni tengd frumkvöðlastarfi og mikilvægi breiðs samstarfs. sisi@mbl.is