Kaitlyn Dever er meðal leikenda.
Kaitlyn Dever er meðal leikenda. — AFP
Fíkn Dopesick er ný smásería sem kom inn á efnisveituna Hulu í vikunni. Hún fjallar um ópíóðafaraldurinn sem geisað hefur í Bandaríkjunum og ekki sér fyrir endann á. Dauðsföll vegna þess arna hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári.
Fíkn Dopesick er ný smásería sem kom inn á efnisveituna Hulu í vikunni. Hún fjallar um ópíóðafaraldurinn sem geisað hefur í Bandaríkjunum og ekki sér fyrir endann á. Dauðsföll vegna þess arna hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári. Þættirnir byggjast á samnefndri bók eftir rannsóknarblaðamanninn Beth Macy. Meðal leikara eru Michael Keaton, Rosario Dawson¸ Peter Sarsgaard og Kaitlyn Dever og leikstjóri er Barry Levinson sem meðal annars gerði Rain Man.