Rannsókn á andláti sem varð í Sundhöll Reykjavíkur í janúar lauk fyrir nokkru og er nú til afgreiðslu hjá ákæranda á ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt svari lögreglunnar við fyrirspurn mbl.is er enn beðið sérfræðigagna í málinu.
Rannsókn á andláti sem varð í Sundhöll Reykjavíkur í janúar lauk fyrir nokkru og er nú til afgreiðslu hjá ákæranda á ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt svari lögreglunnar við fyrirspurn mbl.is er enn beðið sérfræðigagna í málinu.
Maðurinn sem lést í Sundhöllinni hét Guðni Pétur Guðnason. Hann starfaði í geðþjónustu og var með geðfötluðum skjólstæðingi sínum í lauginni. Allir sem komu að málinu voru yfirheyrðir og farið var yfir myndefni úr öryggismyndavélum.