Vestfirðir Jón Þór Hauksson mun stýra karlaliði Vestra áfram.
Vestfirðir Jón Þór Hauksson mun stýra karlaliði Vestra áfram. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Vestra og verður því áfram aðalþjálfari liðsins í næstefstu deild karla á næsta tímabili. Liðið hafnaði í 5.

Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Vestra og verður því áfram aðalþjálfari liðsins í næstefstu deild karla á næsta tímabili.

Liðið hafnaði í 5. sæti í deildinni í sumar og komst í undanúrslit bikarkeppninnar, þar sem liðið laut í lægra haldi gegn Íslandsmeisturum Víkings. Vestri tilkynnti í gær að samningar hefðu náðst að nýju við Jón Þór, sem tók við liðinu á miðju sumri og samdi þá út tímabilið.