Nýuppgert Gamalt hús á nýjum grunni við Starhaga 1 í Reykjavík.
Nýuppgert Gamalt hús á nýjum grunni við Starhaga 1 í Reykjavík. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Borgarráð samþykkti á fundi sínum nú á fimmtudag að veita heimild til þess að ganga frá uppgjöri um eignina Starhaga 1 sem áður var staðsett á Laugavegi 36.

Steinar Ingi Kolbeins

steinar@mbl.is

Borgarráð samþykkti á fundi sínum nú á fimmtudag að veita heimild til þess að ganga frá uppgjöri um eignina Starhaga 1 sem áður var staðsett á Laugavegi 36. Árið 2014 gerðu Reykjavíkurborg og Minjavernd samning um samvinnu við flutning, endurgerð og sölu hússins. Nú sjö árum síðar hefur húsinu verið komið fyrir á varanlegum stað á Starhaga 1 og það verið endurgert.

Hlutur borgarinnar 27 milljónir

Heildarkostnaður verkefnisins hljóðar upp á rétt tæplega tvö hundruð milljónir og er mismunurinn milli kostnaðar og söluverðs hússins rúmar fimmtíu milljónir. Heildarhlutur og kostnaður Reykjavíkurborgar í verkefninu eru þá rúmar 27 milljónir. Líkt og áður segir var samþykkt í borgarráði að klára uppgjör við Minjavernd vegna verkefnisins.

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram bókun um málið. Þar segir meðal annars að „víðtæk samstaða“ hafi verið á sínum tíma um að endurgera húsið. Slíkar framkvæmdir feli þó ávallt í sér óvissu sem „skýri það hvers vegna samið var um að deila hagnaði eða tapi eftir því hver niðurstaðan yrði“.

Gríðarhár kostnaður á hvern fermetra

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins en lögðu þó fram bókun. Þar var bent á að enn á ný væri viðgerðarkostnaður borgarinnar „gríðarlega hár“. Fram kom einnig í bókuninni að kostnaðurinn væri vel á aðra milljón á hvern fermetra að meðtöldum lóðarkostnaði, sem væri mun hærra en kostnaður við nýbyggingu.