Íslensk-bandaríska sprotafyrirtækið Standby Deposits hefur náð fótfestu á Bandaríkjamarkaði og vinnur að gerð samninga við risavaxin leiguþjónustufélög um að bjóða leigjendum upp á húsaleigutryggingu í gegnum þriðja aðila.
Í Bandaríkjunum er markaðurinn fyrir þjónustu af þessu tagi nýbyrjaður að taka á sig mynd og lítið um samkeppni. Margar borgir og ríki hyggjast breyta lögum til að skylda leigusala til að bjóða leigjendum upp á þann möguleika að kaupa þjónustu af þessu tagi í stað þess að nota reiðufé sem tryggingu við upphaf leigusamnings. 12