Eydís Rós er með marga bolta á lofti. Nýlega settist hún í stjórn FKA og sinnir félagsstörfunum samhliða því að reka Vélsmiðju Ingvars Guðna og Kjúklingabúið Vor með manni sínum Ingvari Guðna Ingimundarsyni.
Vélsmiðjan fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og í sumar voru tvö ný eldishús tekin í notkun á kjúklingabúinu, hvort um sig tæplega 900 fermetrar að stærð.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum
þessi misserin?
Verð á galvanhúðun hérlendis er einnig hátt sem hefur auðvitað áhrif á samkeppnismöguleika okkar við innflutta vörur af svipuðum toga. Við höfum heyrt að þetta sé farið að valda því að smíðaverkefni séu nú þegar farin að færast úr landi, þá bæði smíðin og galvanhúðunin.
Í kjúklingabúskapnum hefur reglugerð um velferð alifugla verið til endurskoðunar í ráðuneyti í nokkur ár sem er hamlandi fyrir nýjustu húsin okkar sem við tókum í notkun í sumar. Núgildandi reglugerð kveður á um að í nýjum húsum megi vera með mun minni framleiðslu á hvern fermetra en í eldri og lakari húsum. Reglugerðin sem við vinnum nú eftir er mun strangari og kostnaðarsamari heldur en kollegar okkar í Evrópu vinna eftir. Í ljósi þess má öllum vera ljóst hvað samkeppnisstaða okkar er erfið við innflutning á kjúklingakjöti en sá innflutningur er orðinn mjög mikill.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Hugsarðu vel um líkamann?
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Ég er dugleg að lesa greinar héðan og þaðan sem tengjast búskapnum. Svo er ég að fara til Noregs á norræna ráðstefnu um málefni alifugla í næstu viku. Norðurlöndin hafa átt í markvissu samstarfi til þó nokkuð margra ára og skiptast á að halda þessa ráðstefnu og skipuleggja fróðleg og fjölbreytt erindi.
Einnig hefur starf FKA fært mér alls konar tækifæri sem hafa klárlega bætt þekkingu mína. Þegar maður er í eigin rekstri er svo mikilvægt að eiga samtal við aðila sem fást við sambærileg verkefni þó þau geti kannski verið á allt öðru sviði.
Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag?
Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa?
Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu?
Hin hliðin
Nám: Menntaskólinn í Kópavogi 2011; nám til viðurkenningar bókara hjá Endurmenntun Háskóla Íslands 2014; BS í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri 2018; förðunarfræðingur frá Reykjavík Makeup School 2019; hóf árið 2020 fjarnám í skrúðgarðyrkju við Landbúnaðarháskólann.Störf: Fjármálastjóri VIG ehf. frá 2005; skrifstofustjóri Netparta ehf. 2010 til 2017; fjármála- og framkvæmdastjóri Kjúklingabúsins Vor frá 2016.
Áhugamál: Öll útivist, hjólreiðar, garðyrkja, förðun svo eitthvað sé nefnt. En tíminn til að sinna áhugamálunum mætti vera meiri og skipulagðari.
Fjölskylduhagir: Gift Ingvari Guðna Ingimundarsyni, vélvirkjameistara og bónda. Saman eigum við þrjú börn: Þórunni Evu, Eyþór Bergmann og Gretu Sóleyju.