Hvatning Auðvelt er að taka þátt í Syndum og skrá þær vegalendir sem maður syndir á vef átaksins.
Hvatning Auðvelt er að taka þátt í Syndum og skrá þær vegalendir sem maður syndir á vef átaksins. — Morgunblaðið/Eggert
Landsátak í sundi, Syndum, fór af stað 1. nóvember og stendur til 28. nóvember. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), í samstarfi við Sundsamband Íslands, stendur fyrir átakinu.

Landsátak í sundi, Syndum, fór af stað 1. nóvember og stendur til 28. nóvember. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), í samstarfi við Sundsamband Íslands, stendur fyrir átakinu. Vaskir sundgarpar, á námskeiði hjá Brynjólfi Björnssyni sundkennara, syntu átakið formlega af stað í Laugardalslaug um hádegisbil í gær.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.

Vonast ÍSÍ til að landsmenn á öllum aldri taki þátt í átakinu, skelli sér í laugarnar í nóvember og skrái syntar vegalengdir á síðu átaksins. Þeir metrar sem syntir verða munu verða lagðir saman og hægt verður að sjá hve marga hringi í kringum landið landsmenn hafa synt.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á vefsíðunni www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notandanafn og lykilorð og skrá sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notandanafn í verkefninu Lífshlaupið eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Allir sem taka þátt geta átt möguleika á að vinna veglega vinninga.