Cristiano Ronaldo var hetja Manchester United þegar hann jafnaði metin í tvígang í 2:2 jafntefli gegn Atalanta í Bergamo á Ítalíu í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu karla í gærkvöldi.

Cristiano Ronaldo var hetja Manchester United þegar hann jafnaði metin í tvígang í 2:2 jafntefli gegn Atalanta í Bergamo á Ítalíu í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Fyrra mark sitt skoraði hann í uppbótartíma fyrri hálfleiks og seinna markið í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Stórveldin Bayern München og Juventus tryggðu sér þá sæti í 16-liða úrslitum keppninnar með öruggum sigrum í gærkvöldi. Bæði lið eru með fullt hús stiga að loknum fjórum leikjum í sínum riðlum. 23