Maren Lind fyrir framan flokkunarböndin sem staðsett eru aftan við innskráningarborðin.
Maren Lind fyrir framan flokkunarböndin sem staðsett eru aftan við innskráningarborðin. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Miklar framkvæmdir standa yfir á Keflavíkurflugvelli þessi misserin. Afar flókið uppbyggingarverkefni er í farvatninu sem tengist móttöku og afhendingu farangurs þeirra sem um völlinn fara.

Þótt ferðaþjónustan eigi enn eftir að ná vopnum sínum er handagangur flestum stundum í Leifsstöð. Í september fóru ríflega 326 þúsund manns um völlinn.

Og það var sannarlega líf í tuskunum þegar blaðamann og ljósmyndara bar að gerði nýverið. Þar tók á móti okkur Maren Lind Másdóttir, forstöðumaður mannvirkja og innviða hjá Isavia, félagsins sem á og rekur flugvöllinn.

Á hennar herðum hvílir nú stórt og flókið verkefni sem felst í að uppfæra farangurskerfi vallarins. Er það aðkallandi verk þar sem ný Evrópureglugerð kallar á endurnýjun svokallaðra gegnumlýsingar- og sprengjuleitarvéla sem ætlað er að tryggja öryggi farþega og véla sem taka á loft frá flugvellinum á Miðnesheiði.

Útskipti í lifandi umhverfi

„Það sem gerir verkefnið mjög flókið eru nýju tækin og útskipti þeirra í lifandi umhverfi, en tækin koma frá Smits Detection sem er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í framleiðslu öryggisbúnaðar af þessu tagi, en tækin eru töluvert umfangsmeiri en þau sem fyrir eru.“

Þegar öllum öryggiskröfum hefur verið fylgt fáum við að líta töskuflokkunarbúnaðinn sem tekur við öllum farangri sem innritaður hefur verið til flugs í Keflavík. Þar er þröng á þingi, bæði fyrir búnað og menn.

„Við munum gera þetta með skipulegum hætti og við þurfum í fyrsta lagi að taka svæði af innritunarborðunum til þess að geta athafnað okkur. En þá munum við einnig þurfa að taka hluta af því rými sem komuverslun Fríhafnarinnar hefur haft til umráða,“ segir Maren Lind. Bendir hún á að samið hafi verið við fyrirtækið Alstef að undangengnu útboðsferli um framleiðslu og uppsetningu á búnaði farangurskerfanna en fyrirtækið hefur mikla reynslu af umbreytingaverkefnum af þessu tagi.

Miðað við teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum er ljóst að 300-400 fermetrar verða teknir af núverandi verslun en töluverð stækkun á komusvæðinu er í gangi sem mun stækka verslunina nánast tvöfalt frá því sem nú er þegar uppbyggingu er lokið.

„Þetta er nauðsynlegt til þess að koma þriðju og síðustu vélinni fyrir. Þessi framkvæmd er hins vegar hugsuð í samhengi við breytingar á komusalnum þar sem farþegar geta nálgast innritaðan farangur að flugi loknu. Þegar líður á framkvæmdatímann mun verslun Fríhafnarinnar flæða inn á það svæði sem nú er að hluta undir komuböndin.“

Maren Lind segir ljóst að þessar framkvæmdir muni hafa talsvert rask í för með sér og að farþegar muni finna fyrir því. Hins vegar sé höfuðáhersla lögð á að upplýsa fólk um hvað er verið að gera á hverjum tíma og einnig að undirstrika að þessar aðgerðir eru gerðar til þess að efla þjónustuna til lengri tíma litið.

„Þegar farangurskerfið verður fullbúið á rekstraröryggið að verða tryggt á þann hátt að farþegar upplifi ekki tafir á afhendingu farangurs í innritun. En við erum ekki aðeins að breyta þessum hluta farangurskerfisins heldur einnig komuhlutanum,“ segir Maren Lind og vísar þar m.a. til breytinga á komuböndunum.

Fimm ný komubönd

„Við erum að reisa nýja viðbyggingu sem á m.a. að hýsa svæði fyrir ný komubönd. Þau eru þrjú í dag en eftir uppfærslu verða þau fimm á mun stærra svæði og með öðru sniði.“ Eru það hringekjur og verða þær með hallandi böndum, líkt og meðfylgjandi tölvuteikning gefur hugmynd um.

„Með þessu verður hægt að koma fleiri töskum fyrir á minna svæði og það þýðir að farþegi þarf ekki að bíða eftir að annar farþegi fjarlægi tösku til að skapa rými á bandinu.“ Þá bendir Maren Lind á að afhendingu farangurs í yfirstærð verði breytt og hún gerð aðgengilegri en verið hefur.

Nýju farangursböndin verða tekin í notkun í áföngum. Fyrst þrjú í nýju viðbyggingunni og verða þau tekin í notkun í byrjun árs 2023. Í síðari hlutanum bætast við tvö bönd á því svæði sem hýsir nú komuböndin sem hverfa munu úr flugstöðinni og er það áætlað 2025.

Spurð út í kostnaðinn við hinn nýja búnað, bæði þann sem tengist öryggismálum við innritun en einnig komuböndin segir Maren Lind að fjárfestingin í honum nemi um 3,5 milljörðum króna. Hins vegar nemur heildarfjárfesting framkvæmdaverkefnisins sem kemur til viðbótar, þar sem einnig er tekið tillit til breytingar á núverandi húsnæði og nýbyggingarinnar sem í heild telur um 20 þúsund fermetra, um 20,8 milljörðum króna.