— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kornbændur landsins eru að ljúka þreskingu um þessar mundir. Bændurnir í Laxárdal hófu að þreskja hveiti um helgina, til að nýta þurrkinn, og eru að ljúka uppskerustörfum í dag með því að þreskja nepju.
Kornbændur landsins eru að ljúka þreskingu um þessar mundir. Bændurnir í Laxárdal hófu að þreskja hveiti um helgina, til að nýta þurrkinn, og eru að ljúka uppskerustörfum í dag með því að þreskja nepju. Hveitiuppskeran er ágæt, að sögn Björgvins Þórs Harðarsonar, en þó heldur lakari en á síðasta ári. Bændurnir nota megnið af korninu í svínafóður. Hluti þess er raunar tekinn frá og notaður í matvæli, í pizzur sem seldar eru úr Pizzavagninum og í rasp á svínasnitsel í kjötvinnslu Korngríss sem fyrirtækið rekur í Árnesi.