Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Innlán hafa aukist gríðarlega í bankakerfinu í faraldrinum, bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum.

Innlán bæði einstaklinga og fyrirtækja hafa aukist mikið í faraldrinum, eins og sjá má m.a. í nýbirtum uppgjörum stóru viðskiptabankanna þriggja.

Samtals nemur aukningin fjögur hundruð og sautján milljörðum króna. Innlán voru samtals 1.664 milljarðar króna um áramótin 2020 en eru nú í lok þriðja ársfjórðungs 2.081 milljarður. Heildaraukningin er 25%.

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála Landsbankans, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að innlán í kerfinu hafi aukist mikið, og ekki hvað síst frá heimilum. „Margir hafa haldið góðum tekjum í faraldrinum, þótt auðvitað hafi stórir geirar eins og ferðaþjónustan orðið fyrir miklu áfalli. Á sama tíma hefur fólk ferðast minna en áður og sparnaður þess vegna aukist verulega. Við sjáum það líka í mikilli eftirspurn á verðbréfamarkaði og lágvaxtaumhverfið undanfarið hefur einnig hjálpað til,“ segir Hreiðar.

Hann segir að í svona ástandi byggist upp sparnaður heimila. Það sama eigi við á erlendum mörkuðum.

Mörgum fyrirtækjum gengið vel

Hreiðar segir að innlán fyrirtækja hafi einnig aukist. „Mörgum fyrirtækjum hefur gengið mjög vel í faraldrinum. Byggingargeiranum hefur t.d. gengið mun betur en menn bjuggust við í upphafi og lágir vextir og öflugur fasteignamarkaður hafa hjálpað til.“

Eins og Hreiðar bendir á hafa verslanir margar átt góðu gengi að fagna í faraldrinum.

Hreiðar segir að innlán í Landsbankanum hafi aukist um 10% það sem af er ári og standi nú í 869 milljörðum króna.

Hann segir aðspurður að innlán séu um helmingur af heildarfjármögnun Landsbankans og bætir við að það hlutfall hafi haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár.