Ekki köttur á kreiki.
Ekki köttur á kreiki. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
S ólveig Anna Jónsdóttir greindi frá því á Facebook undir miðnætti á sunnudag að hún hygðist segja af sér sem formaður Eflingar og kvaðst hafa verið hrakin úr starfi af undirmönnum sínum á skrifstofu verkalýðsfélagsins.

S ólveig Anna Jónsdóttir greindi frá því á Facebook undir miðnætti á sunnudag að hún hygðist segja af sér sem formaður Eflingar og kvaðst hafa verið hrakin úr starfi af undirmönnum sínum á skrifstofu verkalýðsfélagsins. Fram kom að trúnaðarmenn á skrifstofunni hefðu kvartað undan stjórnarháttum þar í sumar, en afsögnin kom eftir að Ríkisútvarpið komst á snoðir um málið og fór að spyrjast fyrir í fyrri viku.

Tugir Íslendinga fóru í sótspúandi og vængjuðum álrörum til Skotlands til þess að segja í 26. sinn að komið væri að úrslitastund fyrir mannkyn vegna hlýnandi loftslags . Einn íslenskra umhverfissinnna sem þangað fóru á kostnað skattgreiðenda sagði að Ísland kæmi ekki með neitt að borðinu í Glasgow.

Undirbúningskjörbréfanefnd hélt áfram að hittast í vikunni, enda gagnaöflun að mestu afstaðin. Afstaða manna til þeirra, hvað þá niðurstaða um hvað skyldi til bragðs taka, var þó langt í frá útrædd. M.a. kom fram að hefð væri fyrir því að útstrikun á einum lista þætti nægjanleg til þess að listinn fengi atkvæðið þó kross vantaði.

Nýtt hagsmunafélag fyrirtækja, Atvinnufjelagið, var stofnað um liðna helgi, einkum sniðið að þörfum lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja.

Erill var á veitingastöðum í miðborginni um helgina, svo mikill að lögregla átti í endalausum önnum og tíu svítur í Hverfisteini fullbókaðar.

Grunur kom upp um að þremur konum á Akureyri hefði verið byrluð ólyfjan í drykki þeirra á skemmtistað um liðna helgi.

Manni var vikið úr landsliðshópi í hestaíþróttum þegar athygli Landssambands hestamanna var vakin á því að hann hefði hlotið dóm fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn 13 ára stúlku fyrir 28 árum.

Íslendingar eru í meiri ferðahug en verið hefur og umheimurinn smám saman að opnast, þar á meðal Bandaríkin, sem aftur taka að hleypa almennum, bólusettum farþegum til landsins á morgun. Allir áfangastaðir í beinu flugi frá Íslandi eru í vel bólusettum löndum, en smittíðni þar er mjög mismikil.

154 innanlandsmit kórónuveirunnar greindust um liðna helgi.

Kórónuveirusjúklingur lést á Landspítalanum á sunnudag.

·

Ásökunum á hendur forystu Eflingar rigndi inn á fjölmiðla og félagsmiðla, sumar undir nafni en aðrar ekki. Þar voru Sólveig Anna Jónsdóttir formaður og Viðar Þorsteinsson borin þungum sökum um ofríki og ógnarstjórnun.

Drífa Snædal , forseti ASÍ, kvaðst hafa vitað af vandræðum á skrifstofu Eflingar áður en þau hefðu flotið upp á yfirborðið, en sagði að sambandið tæki ekki fram fyrir hendur aðildarfélaganna fyrr en í fulla hnefana. Varð þó ekki séð annað séð en að stutt hefði verið hnefana hjá Eflingu, sem er með kontór í sama húsi og ASÍ.

Við rannsóknir á íslenskum leghálssýnum í Danmörku hefur komið í ljós að frumubreytingar eru oftar í sýnum héðan en raunin er í dönskum sýnum. Það kann að vera vísbending um að leghálskrabbi sé vangreindur sjúkdómur hér á landi, en tíðni hans er annars í lægra lagi.

Ísland er í 11. sæti meðal 163 ríkja heims, sem metin voru við gerð vísitölu félagslegra framfara . Við þau tíðindi mátti á félagsmiðlum sjá gólað „Vanhæf ríkisstjórn“.

Biskupsstofa hugleiðir að flytjast um set í Grensáskirkju.

Í ljós kom að öflugt skemmtanalíf helgarinnar skilaði sér í 130 smitum, en fleiri áttu eftir að koma í ljós.

Ólafur Ormsson rithöfundur lést 77 ára að aldri.

·

Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir hallarekstri til ársins 2023, sem meirihluti borgarstjórnar telur mikinn varnarsigur. Minnihlutinn bendir á að skuldsetning borgarinnar sé ósjálfbær og að í hreint óefni stefni.

Þúsundir Íslendinga hafa leitað tannlækninga í Búdapest í Ungverjalandi, þar sem þær eru talsvert ódýrari en gengur og gerist hér á landi.

Hluti forystumanna verkalýðshreyfingarinnar kom saman til fundar á vettvangi Starfsgreinasambandsins til þess að ræða kjaraviðræður sem fram undan eru. Væringar í Eflingu vörpuðu þó löngum skugga á þann fund.

Umboðsmaður Alþingis sendi frá sér álit að eigin frumkvæði um ráðningamál hins opinbera, þar sem hann varaði sérstaklega við því að stigamat á umsækjendum gæti eitt og sér ekki riðið baggamun við ráðningar. Það breytti engu um ábyrgð stjórnvalds á ráðningunni.

Færeyska útgerðin Smyril Line bætti við þriðja vöruflutningaskipinu í áætlunarsiglingar til Íslands.

Mál & menning hyggst aftur hefja bóksölu á sínum gamla stað á Laugavegi 18. 60 ár eru síðan forlagið opnaði bókabúð sína þar fyrst.

Söngkonan Eivör Pálsdóttir frá Færeyjum vann tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.

·

Akureyringar eru alræmdir innipúkar en settu ný viðmið í þeim efnum þegar bæjarstjórnin samþykkti bann við lausagöngu katta , sem gildi tekur í upphafi árs 2025. Margir urðu til þess að gagnrýna ákvörðunina og þótti rökstuðningurinn rýr.

Jólin koma snemma í ár, eins og best sást á gríðarlegri sölu þegar jólabjórinn kom í sprúttsölu ríkisins.

Sorpa fyrirhugar 31% gjaldskrárhækkanir á næsta ári, en aðalástæðan er sögð aukinn kostnaður vegna gas- og jarðgerðarstöðvarinnar Gaju í Álfsnesi. Ekki gera allir sér þær skýringar að góðu.

Útgerðin Brim skaust upp fyrir kvótaþakið vegna stóraukinna veiðiheimilda á loðnu. Hún hefur hálft ár til þess að koma því í samt lag.

Samkvæmt rannsókn sem gerð var fyrir Öryrkjabandalagið eru 110 af 113 stoppistöðvum Strætó á landsbyggðinni með ófullnægjandi aðgengi fyrir fatlaða.

Jarðfræðingar hafa gætur á Heklu en þenslan undir henni hefur vaxið að undanförnu. Þessi fornfrægasta eldstöð Íslands er þekkt fyrir að gjósa með örskömmum fyrirvara.

Stjórnarsáttmáli um endurnýjað samstarf ríkisstjórnarflokkanna mun vera í augsýn, en viðræðurnar hafa tekið svo langan tíma að fólk er hætt að spyrja um þær. Það litla, sem út af þeim viðræðum hefur spurst, bendir til þess að lítið hafi breyst flokkanna á millum frá kosningum.

·

Fjöldasmit á karókí-skemmtun á Akranesi jók smit í landinu upp úr öllu valdi, svo Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til hertar sóttvarnatakmarkanir eina ferðina enn. Og ráðherrann hlýddi.

Agnieszka Ewa Ziółkowska tók við formennsku í verkalýðsfélaginu Eflingu, en lagði þegar í stað á flótta undan fjölmiðlum. Hún er dyggur stuðningsmaður Sólveigar Önnu Jónsdóttur , fráfarandi formanns, sem jafnframt lét af embætti sem 2. varaformaður ASÍ.

Mikill uppgangur er í landeldi á laxi , en verði frekari áform þar að lútandi að veruleika verða framleidd meira en 100 þúsund tonn af laxaafurðum í landinu. Það mun þó ekki gerast í einu vetfangi og kallar á meira en 100 milljarða króna fjárfestingu.

Útlit er fyrir að viðhald Laugardalshallar tefjist enn frekar, þar sem enn ein kæra hefur verið boðuð um útboð á framkvæmdunum. Hún hefur nú að mestu verið lokuð í ár eftir að heitavatnsleki skemmdi viðargólf hennar mikið.

Framkvæmdir á nýju byggingarlandi í Vetrarmýri í Garðabæ eru fyrirhugaðar þegar á næsta ári. Þar er gert ráð fyrir bæði fjölbýli og atvinnustarfsemi.

Þingi Norðurlandaráðs var slitið í Kaupmannahöfn. Þar var mikið rætt um nauðsyn frekari opinberra fjárútláta, enda víða ófremdarástand eins og sést á því að löndin tróna ekki efst á alveg öllum alþjóðlegum listum um lífsgæði. Þingfulltrúum bar saman um nauðsyn þess að þeir hittust oftar á kostnað skattgreiðenda landanna.