„Við fáum að vera undir verndarvæng fyrirtækisins við þessa þróun en Frosti verður samt alltaf okkar vara. Frosti fer á markað í Evrópu í mars á næsta ári. Það verða valdar nokkrar verslanir á ákveðnu svæði og varan verður til sölu þar í nokkrar vikur,“ segja þær Aníta Þórunn Þráinsdóttir og Guðrún Alfa Einarsdóttir sem starfa um þessar mundir að vöruþróun hjá Nestlé, stærsta matvælafyrirtæki í heimi. Vara þeirra, Frosti skyr, er frostþurrkað skyr sem getur geymst um árabil án nokkurra rotvarnarefna. Svokölluðum skyrflögum er blandað út í vatn og hrært saman og þá fær fólk skyr með nákvæmlega sömu áferð og áður, með sama næringargildi, lykt og allri upplifun. 10