Sigurmark Adam Armstrong fagnaði sigurmarki sínu vel og innilega.
Sigurmark Adam Armstrong fagnaði sigurmarki sínu vel og innilega. — AFP
Southampton vann nauman sigur á heimavelli gegn Aston Villa, 1:0, þegar liðin mættust í fyrsta leik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Adam Armstrong skoraði sigurmark Dýrlinganna strax á 3.

Southampton vann nauman sigur á heimavelli gegn Aston Villa, 1:0, þegar liðin mættust í fyrsta leik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Adam Armstrong skoraði sigurmark Dýrlinganna strax á 3. mínútu leiksins með glæsilegri afgreiðslu upp í samskeytin.

Southampton hrósaði því sigri í þriðja deildarleiknum í röð, en allir þessir sigurleikir hafa endað með 1:0-sigri Dýrlinganna. Aston Villa er á sama tíma í tómu tjóni og hefur nú tapað fimm deildarleikjum í röð.