Kazan Anton Sveinn McKee komst ekki í úrslitasundið.
Kazan Anton Sveinn McKee komst ekki í úrslitasundið. — Ljósmynd/Simone Castrovillari
Anton Sveinn McKee hafnaði í gær í tíunda sæti í 200 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem nú stendur yfir í Kazan í Rússlandi. Anton varð áttundi í undanrásum í gær á 2:06.

Anton Sveinn McKee hafnaði í gær í tíunda sæti í 200 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem nú stendur yfir í Kazan í Rússlandi.

Anton varð áttundi í undanrásum í gær á 2:06.29 mínútum og síðan tíundi í undanúrslitunum á 2:06,03 mínútum en átta efstu komust í úrslitasundið.

Íslandsmet Antons í 200 metra bringusundinu í 25 m laug er 2:01,65 mínútur en það setti hann á móti í atvinnudeildinni í sundi í Búdapest fyrir ári, 1. nóvember 2020. Með þeim tíma hefði Anton átt besta tíma undanrásanna í gær en bestur var Arno Kamminga frá Hollandi sem synti á 2:02,54 mínútum.

Steingerður Hauksdóttir lauk keppni í Kazan í gær þegar hún varð í 26. sæti af 30 keppendum í 100 m baksundi kvenna. Hún synti á 1:03,33 mínútu og náði sínum besta árangri en hafði áður synt á 1:03,42 mínútu.

Anton Sveinn keppir í 50 metra bringusundi í Kazan í dag og Snæfríður Sól Jórunnardóttir keppir í 200 metra skriðsundi en mótinu lýkur á morgun.