Snæbjörn Brynjarsson
Snæbjörn Brynjarsson
„Afmælisveisla er 42. sýningin sem haldin verður í Midpunkt, en hún markar líka þau tímamót að Midpunkt verður þriggja ára gamalt menningarrými.
„Afmælisveisla er 42. sýningin sem haldin verður í Midpunkt, en hún markar líka þau tímamót að Midpunkt verður þriggja ára gamalt menningarrými. Af þessu tilefni munu aðstandendur og sýningarstjórar Midpunkt nýta tækifærið og sýna sín eigin verk,“ segir í tilkynningu. Sýnendur eru Joanna Pawlowska, Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson, Sveinn Snær Kristjánsson og Snæbjörn Brynjarsson. Sýningin er opnuð í dag kl. 16 og stendur til 14. nóvember.