Grundarfjörður Bæring Cecilsson ljósmyndari vakir yfir safni sínu á sýningunni í Sögumiðstöðinni.
Grundarfjörður Bæring Cecilsson ljósmyndari vakir yfir safni sínu á sýningunni í Sögumiðstöðinni. — Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Gunnar Kristjánsson Grundarfirði Sögumiðstöðin í Grundarfirði er nú orðin að samfélagsmiðstöð. Þúsundþjalasmiðurinn og sagnameistarinn Ingi Hans Jónsson hefur á þessu ári unnið að umbreytingu húsnæðisins.

Úr bæjarlífinu

Gunnar Kristjánsson

Grundarfirði

Sögumiðstöðin í Grundarfirði er nú orðin að samfélagsmiðstöð. Þúsundþjalasmiðurinn og sagnameistarinn Ingi Hans Jónsson hefur á þessu ári unnið að umbreytingu húsnæðisins.

Í húsinu er og verður áfram bókasafn bæjarins og Bæringsstofa sem hefur nú fengið nýjan inngang inn úr miðrými í stað inngangs úr bókasafni. Í Bæringsstofu er salur með sætum fyrir 40 manns og hefur salurinn allur fengið andlitsupplyftingu sem og stólarnir. Þar geta menn sest niður yfir myndasafni Bærings Cecilssonar sem varpað er á sýningatjald og fylgst með uppbyggingu samfélagsins sem og félags- og menningarlífi fólksins á staðnum nánast frá upphafi þéttbýlismyndunar Grundarfjarðar.

Í salnum er sýning tileinkuð Bæring og ljósmyndaáhuga hans. Í miðrými Sögumiðstöðvarinnar er síðan hin eiginlega samfélagsmiðstöð þar sem hinir ýmsu hópar hittast flesta daga vikunnar. Þar má nefna að á vegum Rauðakrossdeildar starfar Vinahúsið og Karlakaffi.

Eldri borgarar hittast þar einn dag í viku til að spjalla og njóta samveru og njóta ýmiss konar uppákoma, á vegum eldri borgara hittist handavinnuhópur þar vikulega auk þess sem þar eru AA-fundir og Lionsklúbburinn heldur sína fundi þar. Þessir aðilar hafa hver sinn fasta tíma virka daga og auk þess er samfélagsmiðstöðin og salur Bæringsstofu nýttur til ýmissa viðburða og funda.

Á döfinni er síðan viðbygging og frágangur á þeim hluta hússins sem hýsa á hinn sögulega þátt uppbyggingar Grundarfjarðar (Grafarness).

Hafnarframkvæmdum fer nú að ljúka því senn líður að því að 130 metra lenging Norðurgarðs sé fullbúin til notkunar. Búið er að ljúka við steypu á þekju og lagnavinna er langt komin og ljósamöstur senn á leiðinni upp. Þótt frágangi sé ekki að fullu lokið er þessi viðbót þegar farin að þjóna tilgangi sínum því skemmtiferðaskipin voru farin að leggjast við hafnarkantinn í ágúst eða um leið og stíga mátti út á steypuna næst skipunum.

Þá eru stóru fiskiskipin héðan og þaðan af landinu iðin við að koma inn til Grundarfjarðar til löndunar og veitir þá oft og tíðum ekki af því að auka viðlegupláss sem Grundarfjarðarhöfn býður upp á.

Vatnstjón varð í grunnskóla og samkomuhúsi á miðju sumri með nokkura daga millibili svo af varð gríðarlegt tjón á gólfefnum og þeim hlutum sem nema við gólf og þola ekki að vatn leiki um.

Í vetrarfríi í síðustu viku og viðbótartíma kringum það tókst að ljúka við endurbætur á því sem af fyrrgreindum tjónum stafaði. Var kennsla í rýmum úti um allan bæ þá daga sem ekki var vetrarfrí og minnti það um margt á þá tíma sem barnaskólinn var orðinn allt of lítill á sjöunda áratug síðustu aldar.

Skólinn var síðan stækkaður í lok 8. áratugarins með góðri viðbót en ekki leið á löngu þar til hann varð aftur of lítill og var hann enn stækkaður í kringum aldamótin síðustu með því að byggja ofan á og bæta við svokallaðri verknámsaðstöðu. Þegar flestir nemendur voru í skólanum voru þeir um 217 talsins. Í dag eru nemendur grunnskólans innan við 100.

Nokkuð hefur borið á húsnæðisskorti hér að undanförnu en vonir um að úr rætist hafa nú glaðnað því að í byggingu eru tvö einbýlishús og eitt níu íbúða fjölbýlishús og öll eru þau komin upp úr jörðu tilbúin í framhaldið.

Vafalaust hefur tilboð Grundarfjarðarbæjar um 50 prósenta afslátt af lóðargjöldum ýtt undir þessar framkvæmdir þótt ekki sýnist fólk bíða í biðröð eftir lóðaúthlutun eins og stendur.

Það virðist þó meira en nóg að gera hjá grundfirskum iðnaðarmönnum og verkefnin ærin í ýmiss konar viðhaldsverkefnum. Verið er að reisa stórt stálgrindarhús á Hafnarsvæðinu sem G.Run hf. byggir og þjóna á sem nýtt netaverkstæði enda húsnæðið sem nú hýsir netaverkstæðið komið til ára sinna. Vélsmiðja Grundarfjarðar flytur inn húsið frá Póllandi og mun skila því fullbúnu undir lagnir.

Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur óskað eftir samtali við sveitarfélögin á Snæfellsnesi um möguleika á viðræðum um að öll sveitarfélögin sameinist í eitt. Sent var erindi þessa efnis til hinna sveitarfélaganna og hafa þau öll tekið jákvætt í þetta erindi og er fundur forsvarsmanna þeirra fyrirhugaður nú í nóvember. Vænta má niðurstöðu viðræðanna áður en langt um líður og er þeirra beðið með nokkurri eftirvæntingu víða á Snæfellsnesi.