Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson
Eftir Sigurð Jónsson: "Makinn stendur uppi með skuldbindingar heimilisins en stærsti hluti teknanna er fallinn út."

Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur nú ákveðið að hækka lífeyri til sinna félaga um 10%. Í sjálfu sér mjög gott mál. Sýnir samt sem áður hversu óréttlátt kerfi við búum við varðandi skerðingar. Aðili sem hefur 200.000 krónur á mánuði úr lífeyrissjóði verslunarmanna fær 20.000 kr. hækkun á mánuði en á móti skerðast greiðslur hans frá Tryggingastofnun, þannig að eftir standa aðeins 5.000 kr. Aftur á móti lítur dæmið betur út hjá þeim sem hefur 700.000 kr. á mánuði. Sá lífeyrisþegi verður ekki fyrir neinum skerðingum frá Tryggingastofnun og greiðir eingöngu skatt af hækkuðu framlagi.

Það hlýtur að vera komið að því að stjórnvöld lagfæri kjör þeirra eldri borgara sem búa við lægstu kjörin.

Heimavinnandi konum refsað

Nýlega var greint frá niðurstöðu rannsóknar þar sem í ljós kemur að konur fá almennt mun lægri greiðslur úr lífeyrissjóðum en karlar. Þetta kemur alls ekki á óvart.

Ef við lítum nokkra áratugi til baka þá var það mjög algengt að eiginkonan ynni ekki úti heldur sæi um að halda heimilið, þar með talið uppeldi barnanna ásamt öllum öðrum heimilisstörfum. Það var fyrst og fremst hlutverk eiginmannsins að stunda vinnu utan heimilisins og vinnudagurinn var oft langur.

Eðli málsins samkvæmt var því lítið um að eiginkonan greiddi í lífeyrissjóð og ynni sér þannig inn lífeyri þegar að lífeyristöku kæmi.

Greiðslur hætta að koma

Nú er það þannig að falli eiginmaður frá á undan konu sinni fær hún makalífeyri í nokkur ár, misjafnt eftir lífeyrissjóðum, en dettur út eftir 3-5 ár. Í mörgum tilfellum stendur þá makinn uppi með skuldbindingar heimilisins en stærsti hluti teknanna er fallinn út. Það sjá allir hversu mikið óréttlæti þetta er.

Staðan var þannig fyrr á árum að litlir möguleikar voru á því að koma börnum á leikskóla. Konan sá um heimilið og hugsið ykkur alla þá fjárhæð sem spöruðust hjá hinu opinbera á þessum árum miðað við það sem nú er.

Það er því ansi óréttlátt að nú, þegar þessar eldri konur ættu að fá greiðslur úr lífeyrissjóði, eru það ansi lágar upphæðir. Ekki nóg með það; eftir 25.000 kr. greiðslur frá lífeyrissjóði lækka greiðslur til hennar frá Tryggingastofnun.

Auðvitað á þetta að vera þannig að hjón eða sambýlisfólk eigi lífeyrissjóðinn sameiginlega. Falli annað frá eiga lífeyrissjóðsgreiðslur að renna til hins.

Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri í Garði. asta.ar@simnet.is

Höf.: Sigurð Jónsson