Knattspyrnumaðurinn Arnþór Ingi Kristinsson hefur lagt skóna á hilluna, 31 árs að aldri. Arnþór Ingi lék undanfarin þrjú tímabil með KR. Hann er uppalinn hjá ÍA og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki þar áður en hann fór til Hamars í Hveragerði.
Knattspyrnumaðurinn Arnþór Ingi Kristinsson hefur lagt skóna á hilluna, 31 árs að aldri. Arnþór Ingi lék undanfarin þrjú tímabil með KR. Hann er uppalinn hjá ÍA og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki þar áður en hann fór til Hamars í Hveragerði. Þaðan skipti hann yfir til Víkings úr Reykjavík áður en hann hélt í Vesturbæinn og vann Íslandsmeistaratitilinn með KR á sínu fyrsta tímabili árið 2019.
Hann lék á ferlinum 117 leiki í efstu deild með KR og Víkingum og skoraði í þeim þrettán mörk.