[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sviðsljós Hólmfríður María Ragnhildard. hmr@mbl.is COP26 er 26. aðildarríkjaþing loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem haldið var í Glasgow dagana 1. til 13. nóvember.

Sviðsljós

Hólmfríður María Ragnhildard. hmr@mbl.is

COP26 er 26. aðildarríkjaþing loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem haldið var í Glasgow dagana 1. til 13. nóvember.

Ráðstefnan hefur verið kölluð uppgjörstími Parísarsáttmálans, sem er lögbundinn alþjóðlegur sáttmáli um loftslagsbreytingar sem var samþykktur á COP21-loftslagsráðstefnunni í París árið 2015. Sáttmálinn kveður á um að þjóðir heims vinni saman að því að koma í veg fyrir að meðalhitastig jarðar hækki um 1,5-2 gráður miðað við meðalhitastigið sem var við upphaf iðnvæðingar.

Fyrir ráðstefnuna í Glasgow í ár voru aðildarríkin beðin um tvennt. Annars vegar að endurskoða og uppfæra framlög sín frá Parísarsáttmálanum, og hins vegar að skila inn framtíðarsýn um hvernig tryggja skuli kolefnislaus ríki.

Yfirlýsingar

Ráðstefnan hófst formlega 1. nóvember með ávörpum þjóðarleiðtoga þar sem þeir settu tóninn fyrir ráðstefnuna og sammælst var um mikilvægi þess að bregðast við þeim aðkallandi vanda er steðjar að jörðinni. Næst tóku við samningaviðræður fulltrúa ríkjanna og að lokum komu ráðherrar til að leysa úr torleystum ágreiningsmálum.

Áður en ráðstefnunni lauk voru mikilvægar sjálfstæðar yfirlýsingar samþykktar af fjölda landa, sem kveða meðal annars á um skógareyðingu, losun metans og kolanotkun.

Yfir hundrað ríki hafa ritað undir yfirlýsingu þar sem þau heita því að stöðva og snúa við tapi á skógum og landeyðingu fyrir árið 2030.

Svipaður fjöldi ríkja hafa einnig skrifað undir yfirlýsingu sem kveður á um 30% samdrátt á losun metans til 2030 miðað við losun ársins 2020.

Þá hafa yfir 40 ríki ritað undir yfirlýsingu um að víkja frá kolanotkun, ýmist fyrir árið 2040 eða 2050. Þá voru þó nokkur ríki á borð við Bandaríkin, Kanada og Bretland sem sáu sér ekki fært að skrifa undir yfirlýsinguna um að stöðva kolanotkun, en þau skrifuðu aftur á móti undir aðra yfirlýsingu þar sem þau hétu því að hætta að fjármagna framleiðslu jarðefnaeldsneytis utan heimalands síns fyrir árslok 2022. Verður fjármunum frekar varið í að fjárfesta í hreinni orku.

Yfirlýsingar Íslands

Alls skrifuðu fulltrúar Íslands undir fimm yfirlýsingar sem voru utan ramma loftslagssamningsins. Meðal þeirra voru yfirlýsingarnar sem minnst var á hér að ofan er varða samdrátt í losun metans og stöðvun á skógareyðingu. Til viðbótar við þær var einnig skrifað undir yfirlýsingu um herta sókn í innleiðingu rafbíla og annarra hreinorkubíla, í von um að þeir verði 100% af bílasölu fyrir árið 2035. Þá rituðu fulltrúar Íslands undir yfirlýsingu sem styður við hrein orkuskipti á heimsvísu og að lokum var ritað undir yfirlýsingu sem kveður á um að draga úr losun frá siglingum og stöðva hana með öllu fyrir árið 2050.

Kína og Bandaríkin

Örfáum dögum fyrir lok ráðstefnunnar bárust einnig þau tíðindi að Kína og Bandaríkin hefðu tekið höndum saman og gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem kveðið var á um að þjóðirnar ætluðu að vinna saman að metnaðarfyllri markmiðum til þess að takmarka hlýnun við 1,5 gráður.

Yfirlýsingin er talin mikilvægt framfaraskref en á sama tíma er hún ansi gloppótt. Hafa gagnrýnendur meðal annars bent á að skortur sé á aðgerðaáætlun um hvernig ríkin hyggist standa við samdrátt í losun auk þess sem lítið hafi verið minnst á fjármagn til að fylgja þessu eftir.

Helstu niðurstöður

Eftir langar og strangar viðræður fulltrúa sendinefnda og ráðherra komst loks mynd á nýjan loftslagssamning 13. nóvember sem aðildarríkin gátu öll staðfest.

Meðal helstu niðurstaðna samningsins eru að ríkin staðfestu mikilvægi þess að halda hækkun hitastigs jarðar undir 1,5 gráðum.

Þá eru ríki beðin um að skila inn metnaðarfyllri markmiðum í samræmi við markmið Parísarsáttmálans fyrir árslok 2022, í stað 2025 eins og upprunalega var kveðið á um.

Ákvæði um að dregið yrði úr kolanotkun og niðurgreiðslum á jarðefnaeldsneyti kom einnig fram.

Hvað varðar fjármagn, þá var farið fram á að þróuð ríki myndu tvöfalda framlög sín til þróunarríkja til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga. Útærslur á reglugerðum og fyrirkomulagi ýmissa ákvæða sem höfðu staðið út af eftir loftslagsráðstefnuna í Póllandi árið 2018, lauk formlega og þar með frágangi á Reglubók Parísarsáttmálans.

Þá kveður lokaákvörðun loftslagsráðstefnunnar einnig á um að lögð sé áhersla á málefni hafsins, jökla, líffræðilegrar fjölbreytni og vernd og endurheimt náttúru og vistkerfa. Auk þess sem áhersla var lögð á að gætt yrði að réttlæti, jafnrétti og mannréttindum í þeim breytingum sem við stöndum frammi fyrir.

Ákvæðin sem ollu vonbrigðum

Lokaútkoman var nokkuð umdeild en fyrstu drög samkomulagsins þóttu mun metnaðarfyllri. Mótmæli stórþjóða höfðu þó dregið úr ýmsum ákvæðum á lokasprettinum sem varð til þess að þau urðu útvötnuð.

Sú breyting sem olli hvað mestum vonbrigðum var án efa ákvæðið um kolanotkun. Í fyrstu drögum loftslagssamningsins voru aðildarríkin hvött til að hætta notkun kola.

Þegar á hólminn var komið reyndist ákvæðið of þungbært fyrir stórþjóðir á borð við Kína og Indland. Eftir miklar samningaviðræður fékkst breyting á orðalaginu samþykkt.

Er nú einungis kveðið á um að dregið verði úr kolanotkun (e. phase-down) í stað þess að hún verði stöðvuð (e. phase-out). Hefur þessi lokabreyting verið gagnrýnd harðlega og þykir nú ákvæðið frekar óljóst og bitlaust.

Þá þótti einnig mikil vonbrigði að ákvæði um bótaábyrgð þróaðra ríkja gagnvart þróunarlöndum hefði ekki hlotið meiri hljómgrunn.

Beiðnir þróunarríkja féllu í grýttan farveg hjá ríkjum á borð við Bandaríkin sem sáu sér ekki hag í því að hleypa ákvæðinu í gegn enda gæti það leitt til þess að hægt væri að heimta milljarða í skaðabætur frá stórþjóðum sem bera hvað mesta ábyrgð.

Í stað þess var komist að þeirri niðurstöðu að árlegar viðræður myndu eiga sér stað til að ræða fyrirkomulag fjármögnunar. Þykja þessi loforð óskýr og ónákvæm.

Þá tókst heldur ekki að efna loforð um loftslagssjóðinn sem hefur verið í deiglunni undanfarin ár. Í hann áttu ríkari þjóðir heims og fjármálastofnanir að safna 100 milljörðum bandaríkjadala á hverju ári til þróunarríkja og átti sjóðurinn að komast á koppinn árið 2020, sem gerðist þó ekki.

Lokaniðurstaða

Lokaniðurstaða og markmið samkomulagsins sem aðildarríkin skrifuðu undir duga því ekki til að takmarka hlýnun við 1,5 gráður. Samkvæmt útreikningum Umhverfisstofnunnar Sameinuðu þjóðanna stefnir nú í að meðalhitastig hækki um 2,4 gráður miðað við þau uppfærðu markmið er komu fram á COP-ráðstefnunni í ár.

Það sem helst stendur upp úr er gagnrýni á ríkari þjóðir heims sem ekki eru talin hafa staðið skil á sínu gagnvart þróunarlöndum, sem eru hvað berskjölduðust fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Þrátt fyrir það eru margir á því að ráðstefnan hafi ekki verið misheppnuð, öllu heldur hafi mikilvæg skref verið stigin.

Niðurstaðan áfangasigur

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir lokaniðurstöðuna vera ákveðinn áfangasigur.

Mestu vonbrigðin hafi þó verið þau að ríki heims hafi ekki sett fram nægjanlega metnaðarfull markmið til þess að hægt sé að halda hlýnun innan við eins og hálfs gráðu markið.

„Núna er mjög skýrt í ákvörðun þingsins að ætlast er til að ríki heims komi með hertari markmið fyrir fundinn á næsta ári.“