Annir Vilhjálmur Svan fagnar þeirri breytingu sem orðið hefur á kúnnahópnum í Herragarðinum að undanförnu. Nú kaupa 13-17 ára gamlir krakkar þar föt frá Polo, Armani og Boss.
Annir Vilhjálmur Svan fagnar þeirri breytingu sem orðið hefur á kúnnahópnum í Herragarðinum að undanförnu. Nú kaupa 13-17 ára gamlir krakkar þar föt frá Polo, Armani og Boss. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sviðsljós Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Næsta kynslóð er komin inn og hún kemur virkilega sterk inn,“ segir Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, verslunarstjóri í Herragarðinum í Kringlunni.

Sviðsljós

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Næsta kynslóð er komin inn og hún kemur virkilega sterk inn,“ segir Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, verslunarstjóri í Herragarðinum í Kringlunni.

Fastir viðskiptavinir verslunarinnar hafa tekið eftir breyttri samsetningu kúnnahópsins að undanförnu. Nú eru ekki lengur bara fullorðnir karlmenn sem sækja þangað vandaðar vörur og góða þjónustu heldur allt niður í börn á fermingaraldri.

„Við höfum alltaf verið sterkir í ungu fólki, til að mynda í kringum útskriftir, en nýi hópurinn er að meðaltali 13-17 ára. Þetta byrjaði fyrir nokkrum árum en hefur aukist mikið að undanförnu. Við starfsmennirnir þurfum að vera búnir í mat klukkan þrjú á daginn til að geta tekið á móti krökkunum eftir skóla,“ segir Vilhjálmur Svan.

Unga fólkið sækir í merkjavöru sem fæst í Herragarðinum. Stóru merkin Polo, Boss og Armani hafa á síðustu árum farið að bjóða upp á fjölbreyttara vöruúrval og jogginggallar, pólóbolir, hettupeysur, vesti og úlpur njóta til að mynda mikilla vinsælda.

„Nú er þetta orðið meira sportí. Þessi fatnaður er orðinn mjög stór hluti af línum stóru tískumerkjanna. Verðið hér er mjög samkeppnishæft við verðið úti og krakkarnir vita það,“ segir verslunarstjórinn.

Vilhjálmur segir að stór merki eins og Armani hafi lengi framleitt jogginggalla. Hann hafi áður fyrr keypt lítið inn af slíkum vörum en nú kaupi hann meira. Stór breyting hafi orðið með kórónuveirunni þegar fólk fór að verja meiri tíma heima hjá sér en áður. Þá hafi margir kosið frjálslegri klæðaburð en áður, enda þurfi fólk ekki að vera í jakkafötum fyrir framan tölvuna heima hjá sér. „Við höfum svarað eftirspurninni, við fundum vel fyrir henni. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt allt saman. Þetta er eiginlega með skemmtilegri tímabilum sem ég hef upplifað síðan ég byrjaði í þessum bransa 1998. Fjölbreytnin er svo mikil,“ segir Vilhjálmur.

Hann játar því fúslega að ólíkt sé að afgreiða ungmenni í búðinni og stálpaða karlmenn. „Það má segja að þessi unga kynslóð sé betur upplýst en við hin eldri. Þegar ég byrjaði að selja herraföt og útskriftarnemi labbaði inn í búðina þá réð ég ferðinni. Nú ráða þau ferðinni. Þessi kynslóð veit betur en við hvað þau vilja, hvort sem það á við um fatnað, síma, tækni eða hvaðeina. Þau vita hvað er í tísku og hvað er á boðstólum, eru búin að skoða vöruna áður en þau labba inn í verslun og vita hvað þau vilja.“

Hann segir áberandi hversu sjálfstætt í hugsun unga fólkið sé. „Það er ekki lengur þannig að mamma og pabbi eigi bara að velja. Við eigum helst ekkert að skipta okkur af þessu.“

Vilhjálmur segir að endingu að unga fólkið sé ánægjuleg viðbót við kúnnahópinn og þeir hinir eldri hafi tekið þessari þróun vel. „Vissulega er einn og einn sem spyr forviða við kassann hvað sá 14 ára við hliðina á honum hafi verið að kaupa. En það er nóg af fermetrum og starfsmönnum fyrir alla.“