Hulda Bjarnadóttir verður sjálfkörin nýr forseti Golfsambands Íslands á Golfþingi 2021 sem fer fram á Fosshóteli í Reykjavík dagana 19. og 20. nóvember.

Hulda Bjarnadóttir verður sjálfkörin nýr forseti Golfsambands Íslands á Golfþingi 2021 sem fer fram á Fosshóteli í Reykjavík dagana 19. og 20. nóvember. Hulda hefur setið í stjórn GSÍ undanfarin fjögur ár og er því flestum hnútum kunnug innan sambandsins.

„Þetta er fyrst og fremst rosalega mikill heiður að fá að leiða sambandið,“ sagði Hulda í samtali við Morgunblaðið. „Ég er bara spennt og til í slaginn og líka auðmjúk að fá að taka við svona embætti fyrir hönd sambandsins og hreyfingarinnar,“ sagði Hulda. 57