Fuglar og menn. S-Allir
Norður | |
♠K10 | |
♥5 | |
♦K542 | |
♣ÁK8652 |
Vestur | Austur |
♠653 | ♠92 |
♥Á1064 | ♥K9872 |
♦G83 | ♦Á1096 |
♣D107 | ♣G9 |
Suður | |
♠ÁDG874 | |
♥DG3 | |
♦D7 | |
♣43 |
Suður spilar 4♠.
Vestur hittir á hættulegt útspil gegn 4♠ – tromp. Hvernig spila menn og fuglar svona samning? Byrjum á fuglunum.
Magnús mörgæs telur vænlegast að aftrompa mótherjana strax, fría svo laufið (með ♣ÁK og stungu) og spila loks tígli á kóng. Hann fer einn niður.
Óskar ugla spilar hjarta úr borði í slag tvö í von um ♥ÁK í austur. Nei, vestur drepur og trompar aftur út. Óskar aftrompar vörnina, fríar laufið og spilar tígli á kóng. Tapað spil.
Kristófer Marteins spilar eins og Óskar til að byrja með. En í stað þess að spila tígli á kóng spilar hann tíguldrottningu að heiman. Síðan ætlar hann að lesa stöðuna: „Vestur kjaftar frá ásnum með hiki. En ef austur á ásinn mun hann lyfta sér í sætinu og glenna upp augun til að skoða vel talningu makkers áður en hann dúkkar. Í því tilfelli klára ég trompin og sendi hann inn á blankt háspil í lokin.“