[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnesi Rauði kross Íslands tekur á móti notuðum fatnaði um allt land í þar til gerðum fatagámum.

Úr bæjarlífinu

Guðrún Vala Elísdóttir

Borgarnesi

Rauði kross Íslands tekur á móti notuðum fatnaði um allt land í þar til gerðum fatagámum. Í Borgarnesi er einn slíkur, rekinn af Vesturlandsdeildinni, og hefur lengst af verið staðsettur við Félagsbæ á Borgarbraut. Í gegnum tíðina hefur hann tekið við gríðarlega miklu magni af fatnaði, svo miklu að stundum hefur ekki tekist að hafa undan við að tæma.

Því miður hefur fólk skilið eftir fulla plastpoka og jafnvel rusl við gáminn, svo lýti hefur verið að. Nú hefur fatagámurinn verið færður um set, hann er ennþá við Félagsbæ en Bjarnarbrautarmegin. Það eru vinsamleg tilmæli til allra að ganga vel um og skilja ekki eftir fatapoka fyrir utan gáminn. Vesturlandsdeild Rauða krossins rekur einnig verslun í Borgarnesi sem selur notaðan fatnað á góðu verði. Verslunin er opin eftir hádegi á föstudögum og laugardögum.

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar heldur sína árlegu jólatónleika fimmtudaginn 9. desember nk. í Hjálmakletti (Menntaskóla Borgarfjarðar). Tvennir tónleikar verða í boði; síðdegistónleikar kl. 18.30 og kvöldtónleikar kl. 21.30. Þetta er í fimmta sinn sem félagið stendur fyrir jólatónleikum. Á tónleikunum kemur fram hljómsveit, skipuð meðlimum í Hljómlistarfélagi Borgarfjarðar, og leikur og syngur ásamt gestum úr Borgarfirði. Aðalgestur tónleikanna verður Sigríður Beinteinsdóttir en forsala miða fer fram í Brúartorgi í Borgarnesi.

Hjónin Elfa Hauksdóttir og Svanur Steinarsson reka hér fyrirtækið Brúartorg. Þar er framköllunarþjónusta og selja þau einnig ýmsar vörur tengdar myndavélum, gjafavöru og garn. Svanur hefur staðið vaktina í þessu fyrirtæki frá síðustu öld, þá er jólakort voru vinsæl og því vertíð á þessum árstíma í myndvinnslu og framköllun. Þjónustan nær til fleiri þátta, s.s. að skanna inn gamlar myndir og lagfæra, taka passamyndir, viðgerðir á úrum o.fl. Upplýsingar má finna á vefsíðunni bruartorg.is.

Íþróttamál Borgarness hafa alltaf verið mér hugleikin. Skallagrímur átti lengi körfuboltalið karla í efstu deild og konurnar eru nú í efstu deild en einhverra hluta vegna hefur oft gengið betur. Íþróttahúsið í Borgarnesi er of lítið til að fylgja eftir stöðu Skallagríms í fremstu röð og kemur það líka niður á öðrum íþróttagreinum. Tveir ungir Borgnesingar, þeir Skúli Guðmundsson og Eiríkur Theodórsson, sem ávallt hafa lagt hönd á plóginn í sjálfboðastarfi fyrir Skallagrím, skrifa athyglisverða grein í Skessuhorn um húsnæðisvanda íþróttaiðkunar í Borgarnesi undir yfirskriftinni: „Skuldum við ekki Skallagrími og öðrum íþróttafélögum að gera betur?“

Þeir benda á að nýtt fjölnota íþróttahús myndi laða að fleiri íbúa og styðja við íþróttir á svæðinu. Þessi húsnæðisvandi er víðtækari, líkamsræktaraðstaðan í sundlauginni stenst tæplega nútímakröfur. Ég veit að reynt hefur verið að koma upp annarri líkamsrækt hér en ekkert húsnæði er á lausu sem hentar eða hefur fengist leigt sem kemur til greina fyrir þessa starfsemi. Vonandi tekst að ná athygli þeirra sem geta haft áhrif á þessa þróun áður en þetta verður að vandamáli þegar kemur að því að laða ungt og efnilegt fólk í plássið.

Nýtt samþætt leiðakerfi sem tengir Kleppjárnsreyki, Varmaland og Borgarnes alveg sérstaklega er ánægjulegt framfaraspor til að tengja sveitarfélagið betur. Að baki liggur áralöng þörf og viðleitni til að koma þessu á. Þetta er tilraunaverkefni styrkt af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu með 12 milljóna króna styrk sem deilist á tvö ár, 2021 og 2022. Borgarbyggð, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Menntaskóli Borgarfjarðar og Vegagerðin standa fyrir þessu samstarfsverkefni og leiða það. Þetta er mikil þjónustuviðbót fyrir íbúa sveitarfélagsins og eykur jöfnuð til náms í heimabyggð.

Í samræmi við verkefnið hefur Borgarbyggð breytt reglum um skólaakstur og fleiri en grunnskólabörn geta nú nýtt skólabílana í uppsveitum Borgarfjarðar og Mýrum. Vegagerðin og Strætó hafa bætt við leiðum í leiðarkerfi sínu og er ekið alla virka daga yfir vetrartímann.

Hjá Foodstation (Fóðurstöðinni) er mikið að gerast. Í lok október tók nýr rekstraraðili við rekstrinum af Kaupfélagi Borgarfjarðar, H veitingar í eigu Hendriks Björns Hermannssonar meistarakokks. Fésbókarsíðan ber vott um stórhug, tónlistarviðburðir eru fram undan, jólahlaðborð með söng og þekktum veislustjórum. Maturinn er á hóflegu verði og mikil aðsókn. Skemmtilegt þegar líf er í tuskunum og hreyfing í samfélaginu þrátt fyrir allt.