Samningur Birgitta Spur og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra skrifa undir samninginn.
Samningur Birgitta Spur og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra skrifa undir samninginn.
Menntamálaráðuneytið hefur gengið frá samningi við Rekstrarfélagið Grímu ehf. um rekstur og listræn störf á vegum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í Reykjavík. Félagið er í eigu fjölskyldu listamannsins sem mun annast daglegan rekstur, s.s.

Menntamálaráðuneytið hefur gengið frá samningi við Rekstrarfélagið Grímu ehf. um rekstur og listræn störf á vegum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í Reykjavík.

Félagið er í eigu fjölskyldu listamannsins sem mun annast daglegan rekstur, s.s. undirbúning og skipulagningu sýningahalds, fræðslustarf, útgáfu og kynningu á verkum listamannsins á samningstímanum.

Sigurjón Ólafsson myndhöggvari var meðal helstu brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi og einn helsti portrettlistamaður sinnar samtíðar. Árið 1984 stofnaði Birgitta Spur, ekkja listamannsins, Listasafn Sigurjóns Ólafssonar utan um höfundaverk hans. Safnið var fært íslensku þjóðinni að gjöf árið 2012 og Listasafni Íslands falið að halda utan um það sem eina heild.

Fram kemur á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, að heildarfjárhæð samningsins sé 97,5 milljónir króna, eða 19,5 milljónir árlega á samningstímanum. Um er að ræða framlag vegna innri rekstrar en Listasafn Íslands leigir fasteignina af Ríkiseignum sem fer með miðlæga umsýslu hennar.