[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Golf Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Hulda Bjarnadóttir verður sjálfkörin nýr forseti Golfsambands Íslands á Golfþingi 2021 sem fer fram á Fosshóteli í Reykjavík dagana 19. og 20. nóvember.

Golf

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

Hulda Bjarnadóttir verður sjálfkörin nýr forseti Golfsambands Íslands á Golfþingi 2021 sem fer fram á Fosshóteli í Reykjavík dagana 19. og 20. nóvember. Hulda hefur setið í stjórn GSÍ undanfarin fjögur ár og er því flestum hnútum kunnug innan sambandsins.

„Þetta er fyrst og fremst rosalega mikill heiður að fá að leiða sambandið. Svo er ég auðvitað full tilhlökkunar enda búin að sitja í stjórninni og þekki því verkefnin. Mig klæjar aðeins í fingurna að fá að halda áfram að vinna að því sem við höfum verið að gera og höfum verið að setja í gang. Ég er bara spennt og til í slaginn og líka auðmjúk að fá að taka við svona embætti fyrir hönd sambandsins og hreyfingarinnar. Það hljómar eins og klisja en maður er í alvöru svolítið auðmjúkur,“ sagði Hulda í samtali við Morgunblaðið.

Hún sagði stöðu íþróttarinnar gífurlega sterka um þessar mundir. „Við höfum aldrei verið sterkari sem hreyfing, golfið hefur aldrei verið vinsælla þannig að staðan er gríðarlega sterk. Það er allt saman mjög jákvætt. Þótt það sé verið að tala um að það skorti aðstöðu þá kemur það til af góðu. Klúbbarnir hafa verið að vinna gríðarlega markvisst og gott starf þegar kemur að því að byggja upp barna- og unglingastarf til dæmis. Auðvitað verður því mikil aukning inn í hreyfinguna.

Það er svo margt jákvætt hægt að segja um hvernig staðan er í dag þar sem við höfum aldrei verið sterkari og aldrei stærri. Það er búin að vera allt að 80 prósent fjölgun iðkenda hjá sumum klúbbum núna í Covid-árferðinu. Það hefur svo verið jöfn og þétt 11-12 prósenta fjölgun heilt yfir síðustu ár og við erum að stefna á eins prósents fjölgun líka næstu árin, sem er samkvæmt stefnu sambandsins til 2027. Við viljum ekkert gefa eftir. Flestir klúbbar standa frammi fyrir því að það sé gott árferði, það er staðan.“

Áskorun að halda dampi

Úr því að árferðið er þetta gott er farvegurinn þá ekki sérstaklega frjósamur þegar kemur að því að leggja grunn að því að Ísland eignist fleiri og betri kylfinga? „Jú og það náttúrulega verður til þess að maður vill líka vekja stjórnir klúbbanna til meðvitundar um að nú er góðæri, nú er gott árferði og þá þurfum við líka að huga að nýliðun, að styðja við afrekskylfingana okkar sem munu halda nýliðuninni við og munu halda ímynd íþróttarinnar á lofti.

Það er það sem við höfum verið heppin með líka. Það hefur verið gott árferði en það er líka af því að kylfingarnir okkar hafa staðið sig frábærlega á erlendri grundu. Þau eru í raun og veru okkar besta ímynd og vara. Umfjöllunin hefur aldrei verið meiri. Við erum eiginlega svolítið í toppi með mjög margt, ef ekki allt. Nú verður áskorunin í raun að halda áframhaldandi dampi,“ sagði Hulda við Morgunblaðið. Nánar er rætt við Huldu á mbl.is/sport/golf í dag.