Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helgadóttir hefur tekið við formennsku þingflokks Samfylkingarinnar, en svohljóðandi tillaga formanns var samþykkt á þingflokksfundi í gær. Helga Vala hefur setið á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar frá árinu 2017.

Helga Vala Helgadóttir hefur tekið við formennsku þingflokks Samfylkingarinnar, en svohljóðandi tillaga formanns var samþykkt á þingflokksfundi í gær. Helga Vala hefur setið á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar frá árinu 2017. Hún var formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á árunum 2017 til 2019 og formaður velferðarnefndar 2019 til 2021.

Þórunn Sveinbjarnardóttir var auk þess kjörin varaformaður þingflokks og Kristrún Frostadóttir ritari þingflokks á fundinum, að því er segir í tilkynningu.