44 Bjarni er í 19.-22. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.
44 Bjarni er í 19.-22. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar. — Ljósmynd/Skövde
Bjarni Ófeigur Valdimarsson fór á kostum fyrir Skövde þegar liðið tapaði með minnsta mun gegn Amo í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í handknattleik í Skövde í gær.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson fór á kostum fyrir Skövde þegar liðið tapaði með minnsta mun gegn Amo í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í handknattleik í Skövde í gær. Leiknum lauk með 40:39-sigri Amo sem vann einvígið samanlagt 76:71 en Bjarni Ófeigur skoraði tíu mörk og var markahæstur í liði Skövde. Skyttan hefur spilað mjög vel með Skövde í Svíþjóð á tímabilinu og er í 19.-21. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar með 44 mörk í níu leikjum.