Einar Bárðarson
Einar Bárðarson
Eftir Einar Bárðarson: "Samtals eru þetta 9.477 tonn sem samsvara losun 4.738 fólksbíla á sama tíma. Vert er að hafa í huga að hér er um stöðvun að ræða en ekki bindingu."

Endurheimt votlendis er viðurkennd aðferð hjá loftslagsráði Sameinuðu þjóðanna (IPCC) í baráttunni við loftslagsbreytingarnar. Alþjóðleg viðmið um losun hvers hektara sem IPCC hefur gefið út eru 19,5 tonn. Um nokkurra ára skeið hefur vísindafólk Landgræðslunnar unnið að rannsóknum á meðallosun íslenskra mýra. Mælt er á fjórum mismunandi stöðum á landinu og til þessa hafa mælingarnar gefið til kynna að meðaltalið sé nokkuð svipað hvað viðkemur losun íslenskra mýra.

Þetta þýðir að árlega losar hver hektari í framræstu mýrlendi 19,5 tonn af koltvísýringsígildum. Árið 2019 stöðvaði sjóðurinn losun 1.404 tonna af koltvísýringsígildum en uppreiknað til þriggja ára eru það 4.212 tonn. Árið 2020 stöðvaði sjóðurinn 2.636 tonn en uppreiknað til tveggja ára eru það 5.265 tonn. Samtals til dagsins í dag eru þetta 9.477 tonn sem samsvara losun 4.738 nýrra fólksbíla á sama tíma. Vert er að hafa í huga að hér er um stöðvun að ræða en ekki bindingu.

Votlendissjóðurinn endurheimtir nú 70 hektara landsvæði í Fífustaðadal við Arnarfjörð. Með framkvæmdinni stöðvast losun 1.400 tonna af koltvísýringsígildum á ári, sem er það sama og 700 nýlegir fólksbílar losa á ári. Þarna er ekki bara um loftslagsaðgerð að ræða heldur eflir framkvæmdin náttúrulegan fjölbreytileika, endurheimtir vistkerfi mýranna og skapar vinnu fyrir verktaka á svæðinu.

Frá árinu 1970 hefur þessi framræsing í Fífustaðadal losað um 70.000 tonn af koltvísýringsígildum. Endurheimtin er unnin að beiðni landeiganda sem gerði samning við Votlendissjóð um framkvæmdina en jörðin hefur aldrei verið nýtt til framleiðslu í landbúnaði.

Landgræðslan vegur og mælir forsendur allra framræsingarverkefna Votlendissjóðs og að lokinni framkvæmd er verkið mælt og metið að nýju. Ef verkið hefur heppnast til fulls færir Landgræðslan það í samantektartölur landsins um stöðvun losunar frá framræstu votlendi.

Votlendissjóður er einkarekinn sjóður sem var stofnaður árið 2018. Markmið sjóðsins er að undirbúa og framkvæma endurheimt framræsts votlendis. Endurheimt votlendis er ekki bara einföld og mjög hraðvirk leið í baráttunni við loftslagsbreytingarnar, heldur er endurheimt votlendis um leið stórkostlegt vopn í endurheimt vistkerfa og styður við náttúrulegan fjölbreytileika á þeim svæðum þar sem hún er framkvæmd.

Votlendissjóður býður öllum landeigendum til samstarfs um framkvæmd endurheimtar á svæðum í þeirra eigu. Undir slíkum samningi tryggir landeigandinn að endurheimtin verði unnin af fagaðilum og undir eftirliti og mælingum Landgræðslunnar. Á átta ára samningstíma greiðir Votlendissjóður fyrir alla vinnu við undirbúning og framkvæmd endurheimtarinnar. Þá er fylgst með framkvæmdinni og henni viðhaldið. Á samningstímanum er ábati aðgerðanna, þ.e. kolefniseiningarnar, eign sjóðsins og selur sjóðurinn þær til að fjármagna aðgerðina. Að samningstímanum loknum eru einingarnar eign landeigandans.

Kynntu þér starfið okkar hjá Votlendissjóði á www.votlendi.is og sjáðu sóknarfærin sem liggja allt í kringum okkur í loftslagsbaráttunni.

Höfundur er framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. einarb@votlendi.is