[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður á Lögfræðistofu Reykjavíkur, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá Torfa sem spyr hvort hann megi sitja í óskiptu búi.

Marta María

mm@mbl.is

Sæl Þyrí

Má sitja í óskiptu bú eftir að selt er úr búinu, til dæmis íbúð? Getur eftirlifandi gift sig aftur og setið áfram í óskiptu búi?

Kveðja, Torfi.

Sæll Torfi,

Varðandi fyrri spurningu þína þá kemur fram í erfðalögum að maki sem situr í óskiptu búi hafi eignarráð á fjármunum búsins. Í því felst m.a. að hann ber ábyrgð á eigum og skuldum hins látna sem um hans eigin eignir og skuldir væri að ræða. Það er alls ekkert útilokað að maki geti setið áfram í óskiptu búi þótt eignir eins og íbúð séu seldar úr búinu á eðlilegum forsendum. Hins vegar ber að hafa það í huga að aðrir erfingjar geta krafist skipta á dánarbúi ef þeir sýna fram á að eftirlifandi maki rýri efni búsins með óhæfilegri fjárstjórn sinni eða veiti tilefni til að óttast megi slíka rýrnun.

Að því er varðar seinni spurningu þína, er skýrt kveðið á um það í erfðalögum að gangi eftirlifandi maki í hjúskap að nýju, falli niður heimild hans til setu í óskiptu búi.

Kær kveðja,

Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður

á Lögfræðistofu Reykjavíkur.