Claire Foy leikur hertogaynjuna.
Claire Foy leikur hertogaynjuna. — AFP
Fjaðrafok A Very British Scandal nefnast nýir dramaþættir sem frumsýndir verða í breska ríkissjónvarpinu, BBC, í mánuðinum. Þar er til umfjöllunar frægt skilnaðarmál hertogans og hertogaynjunnar af Argyll árið 1963 en þau voru áberandi fólk á þeim tíma.
Fjaðrafok A Very British Scandal nefnast nýir dramaþættir sem frumsýndir verða í breska ríkissjónvarpinu, BBC, í mánuðinum. Þar er til umfjöllunar frægt skilnaðarmál hertogans og hertogaynjunnar af Argyll árið 1963 en þau voru áberandi fólk á þeim tíma. Hertoginn sakaði spúsu sína opinberlega um að halda fram hjá sér eftir að honum bárust í hendur ljósmyndir af henni í félagsskap annarra karla. Úr varð mikið fjaðrafok. Claire Foy og Paul Bettany eru í helstu hlutverkum en handritið skrifar Sarah Phelps.