ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Viktoría Ásgeirsdóttir og Þorsteinn Jónsson sjá um samverustund sunnudagaskólans. Kór Áskirkju syngur, organisti er Bjartur Logi Guðnason.
ÁSTJARNARKIRKJA | Helgistund á aðventu. Jólalög verða sungin. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina ásamt söngfólki. Prestur er Kjartan Jónsson. Grímuskylda. Stundinni verður streymt á Fésbókarsíðu Ástjarnarkirkju.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Félagar úr Kór Breiðholtskirkju syngja undir stjórn Arnar Magnússonar.
Sunnudagaskóli kl. 11. Hann hefst í guðsþjónustu en síðan fara börnin á jarðhæð með Steinunni Þorbergsdóttur djákna og Steinunni Leifsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Alþjóðlegi söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14. Prestar sr. Toshiki Toma og sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Barnagæsla meðan á guðsþjónustu stendur.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11, heyrum hugvekju um aðventuna og syngjum aðventu- og jólalög. Jónas Þórir organisti leikur á flygilinn, Sóley Adda, Kata og sr. Þorvaldur þjóna. Athugið aðeins ein messa þennan dag.
DIGRANESKIRKJA | Helgistund sunnudag kl. 11. Prestur er Bolli Pétur Bollason. Organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Sunnudagaskóli í kapellu kl. 11.
Hjallakirkja kl. 17. Prestur er Sunna Dóra Möller. Tónlist: Matthías V. Baldursson.
DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar dómorganisti og Dómkórinn. Gætum vel að sóttvörnum.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 10.30. Stefnt er að aðventuhátíð Egilsstaðakirkju viku síðar, 12. desember, ef aðstæður leyfa – nánar auglýst síðar.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Marta Karítas og Dagný skreyta piparkökur með börnunum. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina
FRIÐRIKSKAPELLA | Guðsþjónusta 5. desember kl. 11. Sakarías Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Nánar á jelk.is.
GLERÁRKIRKJA | Sunnudagur. Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju, kór Glerárkirkju ásamt prestum kirkjunnar syngur inn aðventuna kl. 18. Á þennan viðburð þurfa allir gestir fæddir 2015 og fyrr að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi. Hraðprófið má ekki vera eldra en 48 klst. gamalt. Hægt er að bóka hraðpróf á www.hraðprof.is.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi. Kirkjukór Grensáskirkju og Ásta Haraldsdóttir kantor leiða safnaðarsöng. Hátíð í tilefni 25 ára vígsluafmælis Grensáskirkju er frestað. Unga kirkjan kl. 17, skráning. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur: Núvitundarstund kl. 18.15-18.45, einnig á netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Sunnudagaskóli 5. desember kl. 11. Prestar eru Leifur Ragnar Jónsson og Pétur Ragnhildarson og co. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Sighvatur Karlsson. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Félagar úr Barbörukórnum syngja. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Nánar: hafnarfjardarkirkja.is.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Karlakór Reykjavíkur syngur og leiðir messusönginn undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Barnastarfið er í kórkjallara, gengið er inn austan megin kirkjunnar.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Meðlimir í Kordíu, kór Háteigskirkju, leiða söng.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Helgistund í Digraneskirkju sunnudag kl. 11. Prestur er Bolli Pétur Bollason. Organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Sunnudagaskóli í kapellu kl. 11.
Hjallakirkja kl. 17.
Prestur er Sunna Dóra Möller. Tónlist: Matthías V. Baldursson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma kl. 13. Boðið verður upp á tónlistaratriði, barnastarf, lofgjörð o.fl. Guðjón Vilhjálmsson flytur stutta hugvekju. Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Aðventustund 5. desember kl. 11. Arnór Vilbergsson organisti leikur undir söng kórfélaga og sr. Erla Guðmundsdóttir leiðir stundina.
Sunnudagaskólinn fer fram í Kirkjulundi kl. 11 þar sem Grybos, Marín og Helga leiða söng, biblíusögur og bænir ásamt skemmtilegum brúðum.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli 5. desember kl. 11. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar, Góðir grannar syngja undir stjórn Egils Gunnarssonar og organisti er Bjartur Logi Guðnason. Sunnudagaskólinn á sínum stað í safnaðarheimili kirkjunnar. Fyllstu sóttvarna gætt.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, leikir og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Arni Agnarsson og Kristrún Guðmundsdóttir. Guðsþjónustugestir ganga inn um kirkjudyr en sunnudagaskólinn verður alfarið í safnaðarheimili og ganga þátttakendur beint þar inn. Við leggjum áherslu á smitvarnir og minnum á grímur og metraregluna. Ekki er boðið upp kaffisopa.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Aðventukvöld/endurkomukvöld verður haldið í kirkju Óháða safnaðarins 5. desember kl. 20, ath. messutíma. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar. Óháði kórinn undir stjórn Kristjáns Hrannar leikur á als oddi og syngur jólalög eftir Queen, Baggalút og David Bowie auk hefðbundnu jólasálmanna. Einsöngvari er Bragi Árnason. Sr. Hjalti Jón Sverrisson, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, deilir jólahugvekju. Ólafur Kr. mun taka á móti kirkjugestum. Grímur og sóttvarnir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli og Bára leiða stundina og Tómas Guðni sér um undirleikinn.
Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Að láta ljós þitt skína. Arnar Þór Jónsson lögmaður talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni þjónar. Friðrik er organisti. Kammerkórinn syngur. Kaffiveitingar. Aðventukvöld í dag, laugardag, kl. 18. Barnakór og kammerkór. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir talar. Fólk sýni neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi. Ferð í Fjóshelli við Hellu laugardag 11. des kl. 15. Karl Sigurbjörnsson flytur hugleiðingu. Veitingar. Verð kr. 6 þúsund. Tilkynna þarf þátttöku í síma 8996979.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Kveikt á Betlehemskertinu. Lokaþáttur kyrrðardaga í Skálholti. Fermingarbörn aðstoða. Börn fá fjársjóðskistu og fróðleik um aðventuna. Altarisganga. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson biskup.
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi | Messa kl. 14. Kveikt á Betlehemskertinu. Börn fá fjársjóðskistu og spjall um aðventuna. Altarisganga. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson biskup.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10. Fjölskyldumessa kl. 11.
Aðventuhátíð í streymi á facebook.com/vidalinskirkja kl. 17. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Sigríður Dísa Gunnarsdóttir flytur hugleiðingu. Peter Thompkins leikur á óbó, Erla Björg Káradóttir syngur einsöng, Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar.
ÞINGMÚLAKIRKJA | Aðventuhátíð Þingmúla- og Vallanessóknar verður haldin í félagsheimilinu Arnhólsstöðum í Skriðdal laugardaginn 4. desember kl. 15. Kór Vallaness og Þingmúla og börn syngja undir stjórn Torvalds Gjerde. Kveikt á aðventukertunum, jólaminningar og jólasaga fyrir börn og fullorðna. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina. Kaffiveitingar að dagskrá lokinni. Öllum sóttvarnareglum fylgt.