Myndlistarkonurnar Álfheiður og Árný Björk opna í dag, laugardag, klukkan 14 sýninguna „Í krafti kvenna“ í Gróskusalnum við Garðatorg í Garðabæ.
Í tilkynningu segir að „frjálst flæði og næmi í blöndun lita skapi heillandi blæ í vatnslitaverkum Árnýjar Bjarkar. Hún málaði fyrir sýninguna undir áhrifum frá skrifum Látra-Bjargar og þeim náttúrumyndum sem dregnar eru upp í ljóðum hennar.“ Álfheiður vinnur í sínum verkum með tengsl kvenna við marga þætti og tengir konuna við náttúruna og orkuna. Þær eru báðar félagar í Grósku og í hópi listamanna sem reka Gallerí Grástein við Skólavörðustíg.