Raveena Tandon er vinsæl í heimalandi sínu.
Raveena Tandon er vinsæl í heimalandi sínu. — AFP
Glæpir Bollywoodstjarnan Raveena Tandon er í aðalhlutverki í nýjum indverskum glæpaþáttum, Aranyak, sem koma í heild sinni inn á efnisveituna Netflix 10. þessa mánaðar.
Glæpir Bollywoodstjarnan Raveena Tandon er í aðalhlutverki í nýjum indverskum glæpaþáttum, Aranyak, sem koma í heild sinni inn á efnisveituna Netflix 10. þessa mánaðar. Þar leikur hún hæfileikaríka og harðsnúna lögreglukonu úti á landi sem fær „mál lífs síns“ inn á borð til sín. Ferðamaður er horfinn í skóginum en fljótt kemur á daginn að meira býr að baki. Parambrata Chatterjee leikur félaga hennar úr borgarlögreglunni sem hún er þvinguð til að vinna með. Af öðru nýju netlixefni í desember má nefna seríu 2 af Emily in Paris og The Witcher sem fjallar um sjálfstætt starfandi skrímslabana.