Ný ríkisstjórn á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Fremstir eru nýju ráðherrarnir Jón Gunnarsson og Willum Þór Þórsson.
Ný ríkisstjórn á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Fremstir eru nýju ráðherrarnir Jón Gunnarsson og Willum Þór Þórsson. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ný ríkisstjórn var loks mynduð í landinu, meira en tveimur mánuðum eftir kosningar. Að venju hófust kreistingslegar tilraunir til þess að finna henni nafn (líkt og þau séu nokkru sinni notuð) og virðist Aðventustjórnin hafa fengið mestan hljómgrunn.

ríkisstjórn var loks mynduð í landinu, meira en tveimur mánuðum eftir kosningar. Að venju hófust kreistingslegar tilraunir til þess að finna henni nafn (líkt og þau séu nokkru sinni notuð) og virðist Aðventustjórnin hafa fengið mestan hljómgrunn.

Í hinni endurnýjuðu ríkisstjórn var talsvert hróflað við verkefnum á milli ráðuneyta og sumum ráðuneytum gefin ný nöfn, svo mjög að í stjórnarráðinu virtist enginn fyllilega vita hvað væri hvar, matvælaráðuneytið týndist á leiðinni frá Kjarvalsstöðum til Bessastaða og um skeið virtist endurvinnsluráðuneytið hafa tekið við menningarmálum.

Tveir nýir ráðherrar settust við ríkisstjórnarborðið, þeir W illum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Jón Gunnarsson innanríkisráðherra, en við embætti hins síðarnefnda mun Guðrún Hafsteinsdóttir taka ekki síðar en eftir 18 mánuði. Þá var eining um að Birgir Ármannsson yrði kjörinn forseti Alþingis.

Aðalmarkmið langs stjórnarsáttmála var að endurreisa þyrfti efnahag þjóðarinnar og fjárhag ríkisins eftir að kórónuveiran hættir að kreppa að. Það á að gera með hagvexti, það á að vaxa til velsældar, eins og þar stóð.

Mikil hátíð neysluþjóðfélagsins stóð yfir um liðna helgi og fram í vikuna, þar sem á gekk með myrkum fössara og rafrænum mánudegi. Að sögn Breka Karlssonar neytendafrömuðar var þó ekki einhlítt að öll vara bæri raunverulegan afslátt.

Ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli voru tendruð og jólin ljóslega að koma eftir allt saman.

·

Snjó kyngdi niður á höfuðborgarsvæðinu, en í borginni var einhver bið á heflum og saltdreifingu, svo miklar tafir urðu á umferð, enda víða hált og fólk á misvel búnum bílum.

Ráðherrar skiptust sumir á lyklum og færðu hver öðrum blóm þegar ljósmyndarar fjölmiðla voru komnir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sat hins vegar sem fastast á sínum kontór með sömu lykla, en keypti sér jólarós í tilefni dagsins.

Ráðherrar tjáðu sig sumir um útfærslur á efni stjórnarsáttmálans, sem um sumt er nokkuð loðinn. Þar á meðal kom fram hjá Lilju Alfreðsdóttur að endurgreiðsla skatta vegna kvikmyndaframleiðslu myndi hækka verulega og landið þannig keppa við Írland og Spán um hylli kvikmyndaframleiðenda.

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins fagnaði stefnu ríkisstjórnarinnar um eflingu Samkeppniseftirlitsins, en virðist ekki hafa áttað sig á því að um leið stendur til að sameina það Neytendastofu, svo forstjórastóll hans verður auglýstur laus til umsóknar.

Grímseyingar ætla að reisa nýja kirkju á næsta ári í stað þeirrar, sem brann til kaldra kola í haust. Fjársöfnun fyrir byggingunni hefur gengið vel og búið að gera útlitsteikningar, en nýja kirkjan á að vera með gamla laginu.

Ekki stendur til að setja upp gangbrautarljós í Reykjavík yfir götur, þar sem fyrirhugað er að borgarlínan liggi í fyllingu tímans.

·Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lagði fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2022, en þar er gert ráð fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs verði 55 milljörðum króna minni en upphaflega var óttast. Hann verður samt rúmir 168 milljarðar króna. Vonir standa til að tekjur ríkissjóðs aukist ef hagvöxtur tekur vel við sér. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að hann reynist 5,3% á næsta ári.

Laun hjá ríkinu hafa hækkað talsvert undanfarin misseri. Heildarlaun ríkisstarfsmanna eru nú 912 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. Laun starfsmanna sveitarfélaga hafa þó ekki síður hækkað, nokkuð umfram lífskjarasamninga og meira en hjá ríki eða á almennum vinnumarkaði.

Sama dag fengu heimilin í landinu þær fregnir að mjólkurfernan myndi hækka í verði og kosta 176 krónur. Skýringin liggur í verðhækkunum á aðföngum kúabúa, auknum vinnslukostnaði og launahækkunum nú um áramót.

Ekki er nóg með að loðna sé nú um allan sjó, heldur eru uppi vonir um sterka loðnuvertíð að ári.

Óskað hefur verið heimildar Alþingis fyrir kaupum ríkisins á húsbyggingum Hótels Sögu , sem ætlað er að Háskóli Íslands taki þá í notkun.

Forseti Íslands er enn að veita útflutningsverðlaun , en þau fékk að þessu sinni fyrirtækið Controlant. Við sama tækifæri var leikstjórinn Baltasar Kormákur heiðraður fyrir störf sín á erlendri grundu.

Tryggingafélagið Sjóvá veitti Landsbjörg ríflega 142 milljóna styrk til smíði þriggja björgunarskipa. Tvö þeirra verða afhent á næsta ári en hið þriðja árið 2023.

·Fyrsta tilfelli Ómíkron -afbrigðis kórónuveirunnar greindist á Íslandi og viðbúið að það hafi kraumað í einhverja daga.

Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um 9.000 frá árinu 2017, en starfsmönnum einkageirans fækkað um átta þúsund á sama tíma. Færri og færri vinna því meira og meira til þess að greiða laun fleiri og fleiri.

Margir starfsmenn ríkisins voru hins vegar í algerri óvissu og tilvistarkreppu vegna uppstokkunar ráðuneyta og áttu í meiri erfiðleikum en nokkru sinni með að átta sig á hvar í kerfinu þeir væru staddir. Ekki er von á svörum um það fyrr en á næsta ári.

Það er því vart seinna vænna að lög um Stjórnarráðið verði endurskoðuð líkt og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðaði í stefnuræðu sinni og ríkisstjórnar hennar á Alþingi. Forsætisráðherra vonast til þess að Stjórnarráðið verði sveigjanlegra en verið hefur.

Í umræðum um stefnuræðuna talaði annar hver þingmaður um vöxt til vesældar.

Þó að margir höfuðborgarbúar hrylltu sig yfir snjókomunni átti það ekki við alla. Henni var t.d. fagnað í Bláfjöllum þar sem menn undirbúa sig af fullum krafti fyrir vetrarvertíðina í brekkunum.

Heimatilbúin sprengja fannst í ruslagámi við Mánatún. Þrír góðkunningjar lögreglunnar voru handteknir í tengslum við málið, en ekkert í rannsókn þess bendir til þess að sprengjuna hafi átt að nota gegn erlendum sendiráðsstarfsmönnum þar í grenndinni, líkt og getgátur höfðu verið uppi um.

Opnuð hefur verið svonefnd almannaheillaskrá hjá skattyfirvöldum, en þar geta góðgerðarfélög og ámóta samtök skráð sig, svo framlög til þeirra verði frádráttarbær frá skatti.

Upplýst var á ráðstefnu í Vestmannaeyjum, að Tyrkir (eða Márar) hefðu verið hafðir fyrir rangri sök um Tyrkjaránið þar 1627. Þar hefðu Hollendingar borið mesta sök.

Jón Sigurbjörnsson, leikari og óperusöngvari, lést 99 ára að aldri.

·Raforka er af skornari skammti en þörf er fyrir og ákvað Landsvirkjun að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja af þeim sökum. Eftirspurn eftir raforku hefur aukist mikið undanfarin ár, en við bætist að vatnsbúskapur á hálendinu er með lakasta móti.

Íshellan yfir Grímsvötnum hélt áfram að síga og hefur nú lækkað um rúma tuttugu metra. Rennsli úr Grímsvötnum hefur aukist með hverri mælingu undanfarna daga og viðbúið að þar geti tekið að gjósa hvenær sem er.

Í frumvarpi að nýjum sóttvarnalögum er lagt til að sóttvarnalæknir verði skipaður af heilbrigðisráðherra, skýra þurfi stöðu hans og gera sjálfstæðari.

Flugfélögin eru ánægð með bókanir á næstunni og eru þær mjög í takt við væntingar og áætlanir. Ekki er að sjá að Ómíkron-afbrigðið hafi sett strik í þann reikning enn sem komið er.

Í tímariti um viðskipti og efnahagsmál var greint frá tímamótarannsókn á sviði ferðamála. Í henni var meginniðurstaðan sú að Íslendingar ferðuðust til Tenerife einkum í leit að góðu veðri en síður til þess að svala menningarþorsta eða í viðskiptaerindum.

Flaumur gagna um farsíma heldur áfram að aukast samkvæmt tölfræði Fjarskiptastofnunar og má segja að hann haldi áfram að aukast í línulegum vexti.