Styrmir Maack og Axel Orongan voru áberandi í sókninni hjá Skautafélagi Reykjavíkur þegar liðið varð fyrst til að vinna Skautafélag Akureyrar í venjulegum leiktíma í Hertz-deild karla í íshokkí á Akureyri í gærkvöldi.
SR sigraði 4:2 eftir að SA komst 2:1 yfir í leiknum. Styrmir Maack skoraði eina markið í fyrsta leikhluta en hann átti einnig tvær stoðsendingar fyrir SR í leiknum.
Akureyringar komust yfir í öðrum leikhluta með mörkum Baltasars Hjálmarssonar og varnarmannsins Orra Blöndal. Sölvi Atlason jafnaði fyrir SR og var staðan 2:2 fyrir síðasta leikhluta.
Mörk frá Kára Arnarssyni og Axel Orongan í þriðja leikhluta innsigluðu sigurinn en Axel skoraði í opið mark SA þegar fimm sekúndur voru eftir. Axel gaf einnig tvær stoðsendingar í leiknum.
SA hefur unnið fimm af fyrstu sjö leikjunum en SR fimm af fyrstu níu.