Norðurlandamót Guðfinnur, Þórey, Sonja og Thelma kepptu í Väsby.
Norðurlandamót Guðfinnur, Þórey, Sonja og Thelma kepptu í Väsby. — Ljósmynd/ÍF
Ísland átti fjóra keppendur í flokkum fatlaðra á Norðurlandamótinu í sundi í Väsby í Svíþjóð um síðustu helgi, og allir unnu til verðlauna. Guðfinnur Karlsson úr Firði fékk bronsverðlaun í 100 metra baksundi og 400 metra bringusundi í flokki S11.
Ísland átti fjóra keppendur í flokkum fatlaðra á Norðurlandamótinu í sundi í Väsby í Svíþjóð um síðustu helgi, og allir unnu til verðlauna. Guðfinnur Karlsson úr Firði fékk bronsverðlaun í 100 metra baksundi og 400 metra bringusundi í flokki S11. Sonja Sigurðardóttir úr ÍFR fékk silfurverðlaun í 50 metra baksundi í flokki S4. Þórey Ísafold Magnúsdóttir úr KR fékk silfurverðlaun í 100 metra bringusundi í flokki S14. Thelma Björg Björnsdóttir úr ÍFR fékk bronsverðlaun í 100 metra bringusundi í flokki SB5.