Spænsku meistararnir í Atlético Madríd tryggðu sér í gær sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu. Atlético fór til Portúgal og vann góðan 3:1-útisigur á Porto og náði þar með 2. sæti í B-riðli keppninnar.

Spænsku meistararnir í Atlético Madríd tryggðu sér í gær sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu. Atlético fór til Portúgal og vann góðan 3:1-útisigur á Porto og náði þar með 2. sæti í B-riðli keppninnar. Talsvert gekk á í leiknum en leikmönnum úr báðum liðum var vikið af leikvelli.

Tvö af sigursælustu liðum í sögu Evrópukeppni meistaraliða og Meistaradeildarinnar, Ajax og Liverpool, unnu alla leiki sína í riðlakeppninni þetta tímabilið og eru til alls líkleg. 22