Í tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík hefur nú í fyrsta sinn á heimsvísu tekist að ala loðnu í eldisstöð. Loðnuseiðin sem þar hafa verið alin eru nú að meðaltali tíu sentimetrar á lengd og búist er við því að þau hrygni í stöðinni næsta sumar, rúmlega ársgömul.
Agnar Steinarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, flytur á morgun, fimmtudag, erindi um þessar eldistilraunir með loðnu. Málstofan verður haldin í fundarsal á 1. hæð að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og hefst klukkan kl. 12.30.
Náðu að vaxa og dafna
Í kynningu á verkefninu kemur fram að í vor náðu starfsmenn Hafró, í góðri samvinnu við loðnusjómenn, að frjóvga og klekja út loðnuhrognum og hefja tilraunaeldi á loðnulirfum. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu 22. maí undir fyrirsögninni „Tvö þúsund líflegar eldisloðnur“.Fóðrað var með örsmáu lifandi dýrasvifi og fljótlega kom í ljós að lirfurnar náðu að vaxa og dafna í stöðinni. Rúmum þremur mánuðum síðar var búið að venja tvö þúsund seiði á þurrfóður.
Loðnan er lykiltegund
Í erindinu verða sýndar myndir og myndskeið af þroskunarferli seiðanna og skýrt frá niðurstöðum mælinga. Greint verður frá nýjum rannsóknaklefa stöðvarinnar og fyrirhuguðum rannsóknum á áhrifum súrnunar á vöxt og afkomu loðnulirfa. Þá verður fjallað um mögulegar eldisrannsóknir á loðnu á komandi árum. „Loðna er lykiltegund í fæðuvistkerfinu í hafinu í kringum Ísland og mikilvægt er að skilja hvaða áhrif loftslagsbreytingar gætu haft á vöxt, fjölgun og útbreiðslu tegundarinnar á næstu áratugum,“ segir í kynningunni. aij@mbl.is