Umferðarskilti Hámarkshraðinn 50 km/klst. verður sjaldséður í borginni.
Umferðarskilti Hámarkshraðinn 50 km/klst. verður sjaldséður í borginni. — Morgunblaðið/Unnur Karen
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsmenn framkvæmdadeildar Reykjavíkurborgar hafa á síðustu dögum tekið niður fjölda hraðaskilta við íbúðagötur í austurborginni.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Starfsmenn framkvæmdadeildar Reykjavíkurborgar hafa á síðustu dögum tekið niður fjölda hraðaskilta við íbúðagötur í austurborginni. Þetta er gert í kjölfar þeirrar ákvörðunar borgarráðs og undirstofnana þess að lækka umferðarhraða í íbúðagötum úr 50 km í 30 km á klukkustund. Einnig hafa skilti verið færð til; sett nær stofnbrautum og eru þar til auðkenningar þegar ekið er inn í íbúðagöturnar.

„Sennilega eru þetta um 90 skilti sem við höfum fært til. Svo er svipaður fjöldi af skiltum sem við höfum tekið niður og eru komin í geymslu, segir Stefán Gíslason, rekstrarstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði. Mest hefur verið um breytingar þessar í Langholtshverfi og í Grafarvogi, hvar er fjöldi íbúðagatna sem í sumum tilvikum eru botnlangar.

Síðasta vor samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur áætlun um hámarkshraða. Með henni verða flestar götur í Reykjavík með 40 km hámarkshraða eða minni. Engin gata verður lengur með 60 km hraða og götur með 50 km hraða fáar. Annað gildir um þjóðvegi í þéttbýli sem Vegagerðin sinnir.

Viðmið er að í húsa- og safngötum gildir að hámarkshraði er 30 km/klst. Á öðrum safngötum og í iðnaðarhverfum er hámarkið 40 km/klst., en á stöku köflum þar, svo sem í grennd við skóla, íþróttahús og fleira slíkt, getur viðmiðið verið lægra. Sama er uppi á teningnum á götum þar sem hámarkið er 50 km/klst., en það eru stofngötur sem eru tengingar milli hverfa og aðalbrauta. Skilti og merkingar skv. þessari stefnu verða sett upp á nokkrum árum og í völdum tilvikum fylgja frekari ráðstafanir. Allt er þetta tekið skref fyrir skref og borgin öll er undir.